Lífið

Felli vísindin inn í listina

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
"Eins og flestum finnst mér blóm falleg,“ segir Georg.
"Eins og flestum finnst mér blóm falleg,“ segir Georg. Vísir/Anton Brink
Leynigarðurinn nefnist málverk sem Menntaskólanum við Hamrahlíð var gefið í tilefni 50 ára afmælis á dögunum frá starfsfólki og nemendum í fyrsta útskriftarárgangi skólans.

Gjöfin er verðlaunamálverk eftir Georg Douglas sem flutti frá Írlandi til Íslands fyrir mörgum árum og kenndi efnafræði og jarðfræði við MH í áratugi en er nú kominn á eftirlaun.

„Það var mjög ánægjulegt þegar nemendur komu til mín og báðu mig um mynd handa skólanum,“ segir hann. „Ég er sjálfmenntaður myndlistarmaður en hef líka sótt námskeið í Myndlistarskóla Kópavogs og Myndlistarskóla Reykjavíkur í 15 ár.“

Málverk Georgs eru litskrúðug og hann kveðst mála daglega enda að undirbúa sýningu sem verður á næsta ári í Anarkíu í Kópavogi. „Þetta verður svolítið metnaðargjörn sýning og ég verð með allan salinn svo það þýðir ekki annað en hafa hugann við efnið,“ segir hann glaðlega. 



„Sumum finnst hitabeltisbragur á Leynigarðinum en það er ekki vottur af hitabelti í honum heldur er allt rammíslenskt,“ segir listamaðurinn.
Blóm eru áberandi í nýjustu myndum Georgs. „Eins og flestum finnst mér blóm falleg og sem myndefni finnst mér sérstakt hvernig ljósið kemur í gegnum þau, einkum á kvöldin,“ segir hann.

„Sumum finnst hitabeltisbragur á Leynigarðinum en það er ekki vottur af hitabelti í honum heldur er allt rammíslenskt. Ég er vísindamaður að mennt og hitabeltisblærinn kemur frá ruglingi á raunverulegum stærðum blómanna og smásjármælikvörðum. Þannig leik ég mér með efnið og felli vísindin inn í listina.“



Georg hefur búið á Íslandi í 46 ár. Hann kynntist konunni sinni, Berglindi Magnadóttur í Belfast er bæði voru þar við nám. „Ástandið í Belfast var ekki skemmtilegt á þessum tíma og þegar náminu lauk ákváðum við að koma til Íslands,“ segir hann. „Írar og Íslendingar eru afskaplega líkir. Það hefur aldrei verið erfitt að vera hér.“



 

Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 12. október 2016.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×