Innlent

Bubbi varar við rafsígarettum

Jakob Bjarnar skrifar
Bubbi Morthens, sem sjálfur hefur heldur betur mátt glíma við tóbaksfíknina, segir rafsígarettusölumenn veiða ungt fólk í net sín með allskyns bragðefnum.
Bubbi Morthens, sem sjálfur hefur heldur betur mátt glíma við tóbaksfíknina, segir rafsígarettusölumenn veiða ungt fólk í net sín með allskyns bragðefnum.
Bubbi Morthens tónlistarmaður sakar þá sem selja rafsígarettur um siðleysi. Segir að það geri þeir vegna þess að þeir vilji græða og ungt fólk falli fyrir áróðri þeirra. Þeir bjóði uppá allskyns bragðtegundir til að veiða ungt fólk í net sitt og segja svo bara allt í góðu: Ekki svo hættulegt, bara nikótín.

Þetta setur Bubbi fram á Facebooksíðu sinni og hafa orð hans kveikt fjörlega umræðu. Magnús R. Einarsson tónlistarmaður bendir á að nikótín sé ávanabindandi og sé þar í flokki með heróíni.

En, þó eru ýmsir sem leggja orð í belg sem segja að rafsígaretturnar hafi hjálpað sér til að hætta reykingum. Einn þeirra er Jakob Valby sem segir það jákvæða þróun að fólk sé að hætta að reykja sígarettur og skipta yfir í rafrettur; „ég sjálfur hef gert það og finn þvílíkan mun líkamlega,“ segir Jakob og telur það beinlínis hættulegt að reyna að telja fólki trú um að rafrettur séu jafn hættulegar og sígarettur. En, Bubbi segist ekki vera að tala um það.

Bubbi Morthens hefur sjálfur mátt glíma við tóbaksfíknina eins og vart hefur farið fram hjá landsmönnum, en má í því sambandi nefna það þegar hann var myndaður í bíl sínum, við að reykja eftir að hafa þá lýst yfir opinberlega að hann væri hættur slíku. Myndin birtist í tímaritinu Hér og nú og við var hin fræga fyrirsögn „Bubbi fallin“. Hún þótti af hæstarétti ærumeiðandi, þá og var dæmd dauð og ómerk. Ritstjóranum var gert að greiða Bubba 700 þúsund í miskabætur, þá á þeim forsendum að einhverjir gætu misskilið fyrirsögnina og haldið að Bubbi væri fallinn á fíkniefnabindindi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×