Innlent

Sérsveit lögreglu var kölluð að heimili hælisleitenda á Kjalarnesi

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Arnarholt á Kjalarnesi.
Arnarholt á Kjalarnesi. Vísir/Vilhelm
Lögreglan og sérsveit lögreglu voru kölluð að heimili hælisleitenda í Arnarholti á Kjalarnesi um hádegisbil í gær. Að sögn Valgarðs Valgarðssonar varðstjóra hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var óljóst í upphafi hvað gengi á og var sérsveitin kölluð til vegna öryggis. Alls fóru fjórir lögreglubílar að Arnarholti.

„Tilkynningin var dálítið óljós þarna í upphafi og það var ekki vitað alveg hvað var í gangi og það skýrir það að við sendum fleiri en færri bíla. Sérsveitin fór svo líka upp eftir því hún var hérna á svæðinu en síðan var þetta ágreiningur sem leystist friðsamlega,“ segir Valgarður í samtali við Vísi.

Aðspurður hvort einhver hafi verið handtekinn segir hann svo ekki vera.

„Nei, það var ekki neitt svoleiðis. Það er náttúrulega svolítill fjöldi sem er þarna í Arnarholti á vegum Útlendingastofnunar en tilkynningin var svona óljós, talað um að það væri hiti í mannskapnum og þá þarf ekki mikið til. En svo var allt með kyrrum kjörum þegar lögregla kom á staðinn og þetta leystist allt friðsamlega,“ segir Valgarður.

Hann segir að engin slagsmál hafi verið í gangi þegar lögregla kom og þá hafi enginn verið með vopn.

 

„Það voru einhverjir ekki sáttir með að vera þarna upp frá og voru að byrsta sig gagnvart starfsmönnum Útlendingastofnunar og þeim leist ekki á blikuna en svo sjattlaðist þetta.“

Valgarður segir að það sé ekki algengt að lögreglan sé kölluð út að Arnarholti.


Tengdar fréttir

Rauði krossinn gagnrýndi staðsetningu Arnarholts

Ekki var rætt sérstaklega við aðra íbúa Kjalarnes um komu hælisleitenda nema þá sem fyrir bjuggu á Arnarholti. Rauði Krossinn gagnrýndi lélegt aðgengi að samgöngum, matvöruverslunum og heilsugæslu áður en hælisleitendur voru fluttir inn.

Mikil ólga vegna hælisleitenda á Kjalarnesi

Íbúar Kjalarness halda í kvöld fund til þess að ræða þau vandamál sem skapast hafa vegna tæplega 50 hælisleitenda sem búa í Arnarholti eftir að einn á að hafa áreitt tvær konur í bænum. Lögreglan segir ekkert sérstakt hafa komið upp á.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×