Sport

Jón Margeir komst ekki í úrslit

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Jón Margeir í lauginni í Ríó.
Jón Margeir í lauginni í Ríó. mynd/Íf
Sundkappinn Jón Margeir Sverrisson náði ekki að synda sig inn í úrslit í 100 metra bringusundi á Ólympíumóti fatlaðra í dag.

Jón Margeir synti í mark á 1:12,27 mínútum og varð fimmti í sínum riðli. Í heildina varð Jón Margeir í tólfta sæti.

Aðeins átta efstu taka þátt í úrslitasundinu í kvöld og Jón var rúmri sekúndu frá því að komast í það sund.

Jón Margeir á eitt sund eftir á mótinu en hann tekur þátt í 200 metra fjórsundi á laugardag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×