Erlent

Lochte og Feigen skipað að halda kyrru fyrir í Ríó

Samúel Karl Ólason skrifar
Ryan Lochte og James Feigen.
Ryan Lochte og James Feigen. Vísir/Getty
Dómari í Brasilíu hefur setta bandarísku sundmennina Ryan Lochte og James Feigen í farbann. Leitarheimild hefur verið gefin út fyrir herbergi þeirra og vill lögreglan rannsaka farsíma Feigen. Þeir segjast hafa, auk tveggja annarra sundmanna frá Bandaríkjunum, verið rændir af vopnuðum mönnum í leigubíl í Ríó en lögreglan segist ekki finna vísbendingar sem styðji sögu þeirra. Þá gefi myndbandsupptökur upp aðra mynd en þeir segja.

Lochte virðist hafa verið farinn frá Brasilíu áður en farbannið var sett á, samkvæmt frétt BBC. Bæði Lochte og Feigen unnu til gullverðlauna á ólympíuleikunum.

Frásagnir þeirra af hinu meinta ráni hafa þótt ruglingslegar. Lochte sagði fjölmiðlum fyrst frá þessu í viðtali við NBC en talsmaður ólympínefndarinnar sagði strax að umrætt rán hefði ekki átt sér stað.

Sjá einnig: Heimsfrægur sundkappi rændur af hóp vopnaðra manna í Ríó

Þegar Lochte ræddi við lögreglu sagðist hann hafa verið í samkvæmi með þeim Feigen, Gunnar Bentz og Jack Conger, en samkvæmið var á vegum franska ólympíuliðsins. Hann sagði að þeir hefðu verið í leigubíl á leið til ólympíuþorpsins þegar menn sem þóttust vera lögregluþjónar stöðvuðu leigubílinn.

Lochte sagði ennfremur að einn mannanna hefði beint byssu að höfði hans og tekið alla peninga sem hann var með sér og persónulegar eigur.

Sjá einnig: Lochte neitaði að hlýða ræningjunum

Lögreglan hefur ekki fundið neinar vísbendingar og segir ósamræmi í sögum þeirra Lochte og Feigen. Til dæmis segist þeir hafa komið í þorpið um klukkan fjögur að nóttu til, en myndbandsupptökur sýni að þeir hafi komið í þorpið um klukkan sjö. Þá hafi þeir verið rólegir við öryggishliðið að þorpinu og farið í gegnum það.

Þar að auki hafi þeir sagt að mismargir menn hafi staðið að ráninu. Þá hefur lögreglunni ekki tekist að finna leigubílstjórann sem keyrði þá fjóra heim í þorpið.

Ólympíunefnd Bandaríkjanna segir að hún muni starfa með lögreglunni í Brasilíu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×