Innlent

Sýndu litla borgaralega ábyrgðakennd og grófu undan tiltrú almennings á kjörnum fulltrúum

Höskuldur Kári Schram skrifar
Júlíus Vífill Ingvarsson stofnaði hlutafélag í Panama árið 2014 og Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir tengist tveimur aflandsfélögum í Panama og Tortóla samkvæmt þeim upplýsingum sem komu fram í Panamaskjölunum svokölluðu.
Júlíus Vífill Ingvarsson stofnaði hlutafélag í Panama árið 2014 og Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir tengist tveimur aflandsfélögum í Panama og Tortóla samkvæmt þeim upplýsingum sem komu fram í Panamaskjölunum svokölluðu. Vísir/Valli
Júlíus Vífill Ingvarssonar, fyrrverandi borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks, og Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir, oddviti Framsóknar og flugvallarvina, sýndu litla borgaralega ábyrgðakennd og grófu undan tiltrú almennings á kjörnum fulltrúum í Panamamálinu svokallaða. Þetta kemur fram í harðorðri niðurstöðu siðanefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga vegna málsins.

Júlíus Vífill stofnaði hlutafélag í Panama árið 2014 og Sveinbjörg Birna tengist tveimur aflandsfélögum í Panama og Tortóla samkvæmt þeim upplýsingum sem komu fram í Panamaskjölunum svokölluðu. Hvorugt þeirra greindi frá þessu í hagsmunaskráningu borgarfulltrúa. 

Júlíus Vífill sagði af sér í kjölfar umfjöllunar um málið og Sveinbjörg hefur verið í fæðingarorlofi og ætlar ekki að snúa aftur fyrr en skoðun á hagsmunaskráningu er lokið.

Forsætisnefnd borgarstjórnar óskaði eftir því að innri endurskoðun og regluvörður borgarinnar færi yfir málið og einnig siðanefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Siðanefndin skilaði sinni niðurstöðu í siðustu viku. Nefndin telur sig ekki hafa úrskurðarvald um það hvort siðareglur hafi verið brotnar en telur engu að síður að borgarfulltrúarnir hafi gengið gegn ýmsum almennum viðmiðum. Nefndin segir meðal annars í sinni niðurstöðu að það beri ekki vott um sterka borgaralega ábyrgð kjörinna fulltrúa að ráðstafa fjármunum sínum með þessum hætti.

Þá segir einnig í niðurstöðunni að nefndin líti svo á að skráðar siðareglur kjörinna fulltrúa sé liður í viðleitni þeirra til að sýna almenningi fram á að þeir starfi af heilindum að almannahag. Sú ákvörðun að velja einkaeignum sínum ógagnsæjan stað í aflandsfélagi gangi þvert gegn slíkri viðleitni.

Júlíus Vífill sagði í samtali við fréttastofu að hann hafi talað fyrir því í borgarstjórn að bæta hagsmunaskráningu og skýra reglur sem um þær gilda - en í dag séu þær of óskýrar. Hann telur að úr því að siðanefnd hafi valið að fara þá leið sem hún fór - verði ekki betur séð en að henni hefði borið að sinna rannsóknarskyldu og veita andmælarétt. Hann telur ennfremur að hlutverk siðanefndar sé mikilvægt og því beri að vanda að úrlausn þeirra mála sem nefndin fær til umfjöllunar til að hún njóti trausts.

Ekki náðist í Sveinbjörgu Birnu í dag en Halldór Halldórsson, oddviti Sjálfstæðismanna í borginni og formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, sagði að niðurstaða nefndarinnar væri harkaleg.

Sóley Tómasdóttir forseti borgarstjórnar segir að niðurstaðan sé skýr. Hún á hins vegar ekki von á því að borgastjórn bregðist sérstaklega við þessu áliti.

„Það er ekki borgarstjórnar að bregðast við þessari niðurstöðu. Einstaka borgarfulltrúar taka þetta til sín eins og þeir telja nauðsynlegt. En aðalmálið er að álitið liggur fyrir,“ segir Sóley. 


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×