Lífið

Bieber berjari vill aðra lotu

Birgir Örn Steinarsson skrifar
Maðurinn sem lenti í slag við Justin Bieber í Cleveland í síðustu viku hefur beðið stjörnuna um að hitta sig augliti til auglits. Það vill hann gera til þess að ná sáttum við söngvarann og gefa honum tækifæri til þess að koma í veg fyrir að hann kæri málið.

Maðurinn, sem heitir Lamont Richmond, lofar að halda ró sinni og segist ætla að axla sína ábyrgð á málinu ef Bieber geri það líka. Ellegar muni hann halda áfram með þau áform sín að kæra Bieber en ekki hefur komið fram fyrir hvað. Á myndbandi sem náðist af atvikinu sést greinilega að það var Richmond sem sló fyrsta höggið. Hann hefur sagt að Bieber hafi talað niður til sín og það hafi reitt sig til reiði.

Richmond hefur í kjölfar árásarinnar fengið dauðahótanir frá aðdáendum  Justin Bieber auk þess sem hann var rekinn úr vinnunni sinni vegna málsins. Það er því ljóst að atvikið hefur haft töluverð áhrif á hans líf.

Fréttastofa TMZ greindi frá en árásina má sjá á myndbandi hér fyrir neðan.


Tengdar fréttir

Bieberinn barinn

Myndband náðist af því þegar Justin Bieber lenti í slagsmálum í gærkvöldi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×