Pólskunám við Háskóla Íslands á flug Svavar Hávarðsson skrifar 23. mars 2016 07:00 Áhugi á pólskunámi kom þægilega á óvart. vísir/ernir
Tveimur byrjendanámskeiðum í pólsku við Háskóla Íslands hefur verið tekið afar vel og þrefaldaðist nemendafjöldinn á milli missera. Um er að ræða tvö námskeið fyrir nemendur við skólann sem kennd eru á sex vikum. Það eru Tungumálamiðstöð Háskóla Íslands og Deild erlendra tungumála, bókmennta og málvísinda sem standa að námskeiðunum í samvinnu við Háskólann í Varsjá og með styrk frá EFTA. Einnig verður boðið upp á pólskunámskeið á komandi haustmisseri og á vormisseri 2017. Anna Rabczuk, nýprófessor við Háskólann í Varsjá, kom hingað til lands til að kenna á námskeiðunum. Hún segir í viðtali sem birt er á vef Háskólans að margt hafi komið henni á óvart. Nemendur séu betur að sér um Pólland og pólska menningu en hún bjóst við. Anna segir að áhugi á pólskunámi sé augljós í sínum augum – Pólverjar séu stærsti minnihlutahópurinn á Íslandi og nemendurnir vilji tengjast pólska samfélaginu. Einhverjir eiga pólska nágranna, aðrir leggja stund á pólskunám vegna þess að þeir eiga pólskan maka og svo eru það þeir sem hafa einfaldlega mikinn áhuga á Póllandi. Anna segir að Háskólinn geti stutt við bakið á pólska minnihlutanum á Íslandi með því að tryggja að boðið verði áfram upp á pólskunám við Tungumálamiðstöð skólans. Stúdentum sem sýna náminu áhuga fer fjölgandi því að á fyrsta misseri skráðu tuttugu nemendur sig til þátttöku en á seinna misserinu voru þeir sextíu.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 23. mars.
Mest lesið „Köld vatnsgusa“ framan í skólasamfélagið í Laugardal Innlent Fékk ekki að kveðja eiginmanninn fyrir flugið til Nígeríu Innlent Vann fimmtíu milljónir króna Innlent „Við lögleiðum heróínið en bönnum áfengið. Þetta er galið“ Innlent „Heill vinnustaður er dreginn sundur og saman í háði“ Innlent Vill bjóða NATO að byggja nýjan flugvöll í Færeyjum Erlent Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Vill sjá Latabæ birtast aftur í sjónvarpsstöðvum heims Innlent Lýsa eftir Sigurði Fannari Innlent Fleiri fréttir Tvö innbrot á heimili og líkamsárás með kylfu og piparúða Vann fimmtíu milljónir króna „Köld vatnsgusa“ framan í skólasamfélagið í Laugardal 1.715 börn fengið leikskólapláss Fékk ekki að kveðja eiginmanninn fyrir flugið til Nígeríu Vill sjá Latabæ birtast aftur í sjónvarpsstöðvum heims Drengurinn er fundinn Lýsa eftir Sigurði Fannari „Við lögleiðum heróínið en bönnum áfengið. Þetta er galið“ Koma á fót framkvæmdanefnd um málefni Grindavíkur Vonleysi veðmálanna og eiginmanni vísað úr landi Álftin breyttist í dreka og rak hundinn upp úr með látum Sóttu veikan mann á skemmtiferðaskip umkringt hafís Settur forstjóri skipaður forstjóri „Heill vinnustaður er dreginn sundur og saman í háði“ Breyttar forsendur kalli á nýjan unglingaskóla í Laugardal Ævintýralandið Ísland séð úr háloftunum Dæmdir fyrir ofbeldishrinu Hefur áhyggjur af nýfæddum lömbum á Höfða Uppflettingar í sjúkraskrá: Segir málinu alls ekki lokið Ítrekar afsökunarbeiðni til vöggustofubarna og fjölskyldna þeirra Helmingi dræmari kjörsókn nú en í síðustu forsetakosningum Fulltrúar Stígamóta reyna að tryggja öryggi kvennanna í Nígeríu Heimsótti Julian Assange í Belmarsh-öryggisfangelsið Brottvísun hælisleitenda og dræm þátttaka í utankjörfundi Bein útsending: Má ég taka þátt... í lífinu? Vitni gefur ekki upp nafn vegna ótta við hefndaraðgerðir Beint streymi: Uppfinningar og einkaleyfi Landris heldur áfram á sama hraða Þurftu að farga 30 þúsund eintökum vegna forsetaframboðs Sjá meira