Mikilla breytinga að vænta með nýjum iPhone Sæunn Gísladóttir skrifar 29. mars 2016 08:00 iPhone 7S plús verður líklega með stærri skjá en iPhone 6S sem hér má sjá en hann er með 5,5 tommu skjá. Vísir/Getty
iPhone 7S sem væntanlegur er árið 2017 mun líklega vera með glerhjúp, vera léttari og styðjast við þráðlaust hleðslutæki og heyrnartól. Þessu spáir Ming-Chi Kuo, greiningaraðili hjá KGI Securities, sem hefur reynst sannspár um hvað er í vændum hjá Apple. Samkvæmt spám Kuo mun iPhone 7S síminn verða með glerhjúp eins og iPhone 4 og 4S voru með sem mun gera símann léttari. Skjárinn á stærri útgáfu símans, 7S plus, mun verða 5,8 tommur í stað 5,5 tomma. Apple mun losa sig við innstungu fyrir heyrnartól og hleðslutæki til að gera símann þynnri og í staðinn munu notendur þurfa að styðjast við þráðlaus tæki. Kuo spáir því einnig að Apple muni bæta við andlitsþekkingartækni í nýja símann sem getur aukið öryggi umfram þumalfaratæknina sem iPhone 6 og 6S styðjast við. Kuo spáir þessum breytingum fyrir þar næstu gerð af iPhone en hins vegar er líklegt að eitthvað af þessari tækni muni finnast í nýjustu gerðinni, iPhone 7, sem væntanleg er í haust.Fréttin birtist fyrst Fréttablaðinu 29. mars
Mest lesið Lokar Önnu Jónu og segir það mikinn létti Viðskipti innlent Arnar Már nýr aðstoðarforstjóri Viðskipti innlent Sjö vilja taka við af Gunnari Viðskipti innlent Vinnunetföng algeng leið fyrir hakkara til að brjótast inn í íslensk fyrirtæki Viðskipti innlent Hefja sölu á íbúðum á Orkureitnum Viðskipti innlent Hagnaður Íslandsbanka 5,4 milljarðar á fyrsta fjórðungi Viðskipti innlent Hagnaður Landsbankans nam 7,2 milljörðum á fyrstu þremur mánuðum ársins Viðskipti innlent „Ég var skíthrædd að senda þessa tölvupósta“ Atvinnulíf Bein útsending: Stærri styrktækifæri í mannvirkjaiðnaði Viðskipti innlent Frumkvöðlar koma saman í Kolaportinu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stofnandi Binance dæmdur fyrir peningaþvætti Sagðir vilja frekar loka TikTok en selja Sækjast eftir fangelsisdómi yfir rafmyntakóngi Mikill samdráttur á hagnaði Tesla Ný kynslóð vélmenna vekur óhug Ólígarkar unnu mál vegna refsiaðgerða fyrir Evrópudómstól Gervigreind Amazon reyndist þúsund Indverjar Rekja meirihluta heimslosunar til 57 framleiðenda Í basli með viðhald og viðgerðir á olíuvinnslum Taylor Swift meðal 265 nýliða á milljarðamæringalista Forbes Wow lifir enn góðu lífi í undraheimi Roosevelt Edwards Sjá meira