Alexis Sanchez: Það vantar meiri trú í Arsenal-liðið Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. mars 2016 18:00 Alexis Sanchez. Vísir/Getty
Sílemaðurinn Alexis Sanchez segir að skortur á trú á sig sjálfa geti komið í veg fyrir að leikmenn Arsenal vinni ensku úrvalsdeildina á þessu tímabili. Arsenal tapaði 2-1 á heimavelli á móti Gylfa Þór Sigurðssyni og félögum í ensku úrvalsdeildinni í gær og hefur þar með tapað tveimur deildarleikjum á nokkrum dögum. Liðið tapaði 3-2 á móti Manchester United um síðustu helgi. Arsenal hefur aðeins unnið 2 af síðustu 8 deildarleikjum sínum en annar sigurinn var á móti toppliði Leicester City sem Arsenal hefur unnið tvisvar á leiktíðinni. Alexis Sanchez skaut tvisvar í markramman í leiknum á móti Swansea en hann hefur ekki skorað í deildinni síðan á móti Watford 17. október síðastliðinn. „Okkur skortir trú á því að við getum orðið enskir meistarar," sagði Alexis Sanchez við Directv. „Ég tel að við getum unnið ensku deildina með þessum leikmönnum en að því sögðu þá vantar ákveðið hungur í leikmenn. Við þurfum að koma inn á völlinn með sama hugarfar og við værum 1-0 yfir," sagði Alexis Sanchez. „Ég man eftir leik á móti Manchester United á síðasta ári. Strákarnir litu þá út eins og menn sem ætluðu sér að vinna titil. Við gengum frá þeim á fyrstu tuttugu mínútunum og komust í 3-0. Við vorum hungraðir og fullir sjálfstraust þann daginn," sagði Alexis Sanchez. Alexis Sanchez varð einu sinni spænskur meistari með Barcelona (2013) og hann vann enska bikarinn á sínu fyrsta tímabili með Arsenal.
Enski boltinn Mest lesið „Hún reif í mig og hraunaði yfir mig, á Marilegan hátt“ Sport Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Ferguson saknar fótboltans Enski boltinn Þjálfarinn í byrjunarliðinu: „Mér fannst þörf á smá aga í leikinn“ Handbolti Heimsmeistaranum refsað fyrir notkun blótsyrðis Formúla 1 Gróðursetja tvö hundruð tré fyrir hvert skorað mark Fótbolti Sjö mörk Jóhönnu hjálpuðu til við að landa fyrsta sigrinum Handbolti Fullkomin byrjun lærisveina Arnórs heldur áfram Handbolti Uppgjörið: Fjölnir - HK 28-27 | Flautumarkið fékk ekki að standa og Fjölnir slapp með sigur Handbolti Fleiri fréttir Ferguson saknar fótboltans Alisson tæpur fyrir leikinn gegn Bournemouth Segir Arsenal sífellt betra en vill engar ásakanir um sálfræðistríð Alexander-Arnold reynir að kaupa Nantes Með tvær ferðatöskur af fíkniefnum Hafi snúist hugur og vilji nú fara til Liverpool Segir að hann myndi kýla netníðingana í nefið ef þeir stæðu fyrir framan hann Arteta með vondar fréttir af meiðslum Ødegaards Óviss um að hann sé velkominn á Oasis tónleikana Ten Hag rólegur þrátt fyrir fullkomið kvöld Lið Stefáns skoraði úr sextán vítum Auðvelt á Old Trafford gegn C-deildarliðinu Ten Hag aðvarar Antony: „Verður að vinna sér inn réttinn til að spila“ Liverpool birtir áður óséð efni frá Reykjavík: „Beið í sextíu ár eftir því að sjá þetta“ „Þú færð mikið borgað svo þú mátt ekki sýna tilfinningar“ Willum Þór og félagar lögðu Hollywood-lið Wrexham Höjlund enn fjarri góðu gamni en varnarþríeykið klárt í slaginn Englandsmeistarinn Ingle með slitið krossband Fannst mark Gabriels vera ólöglegt Kærir Richarlison og sakar hann um illa meðferð Segist eiga meiri möguleika á að vinna dansþátt en Spurs að vinna titil „Arsenal spilaði eins og meistaralið“ Arteta ánægður með þroskaða frammistöðu í fjarveru lykilmanna Tvö glæsimörk skoruð í endurkomusigri Newcastle Gabriel hetjan hjá vængbrotnu liði Arsenal í nágrannaslagnum Anthony Taylor dómari sló met í gær UEFA hótar því að reka enska landsliðið af þeirra eigin EM Will Ferrell fylgdist með Leeds í fyrsta sinn Enginn varamaður skorað jafn mörg sigurmörk: „Getur orðið einn besti framherji heims“ Aston Villa með ævintýralega endurkomu gegn Everton Sjá meira
Uppgjörið: Fjölnir - HK 28-27 | Flautumarkið fékk ekki að standa og Fjölnir slapp með sigur Handbolti
Uppgjörið: Fjölnir - HK 28-27 | Flautumarkið fékk ekki að standa og Fjölnir slapp með sigur Handbolti