Innlent

Katrín Júlíusdóttir hættir á þingi

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Katrín Júlíusdóttir
Katrín Júlíusdóttir vísir/Stefán
Katrín Júlíusdóttir, varaformaður Samfylkingarinnar og þingmaður, ætlar ekki að sækjast eftir endurkjöri í næstu Alþingiskosningum. Frá þessu greinir hún inni í hóp Samfylkingarfólks á Facebook.

Þar segir hún að undanfarið hafi margir komið að máli við hana og skorað á hana að sækjast eftir frekara forystuhlutverki í Samfylkingunni. Kveðst hún afar þakklát fyrir það traust sem henni er sýnt en þar sem hún hafi tekið ákvörðun um að sækjast ekki eftir endurkjöri í næstu kosningum hyggst hún ekki bjóða sig fram til frekari forystustarfa fyrir Samfylkinguna.

Katrín segir ákvörðunina persónulega; hún finni að nú sé rétti tíminn til að snúa sér að öðru.

Mikil ólga hefur verið innan Samfylkingarinnar vegna lélegs gengis flokksins í skoðanakönnunum undanfarin misseri og hefur verið boðað til landsfundar þann 4. júní næstkomandi. Í tengslum við fundinn mun fara fram allsherjaratkvæðagreiðsla um nýjan formann flokksins, komi fram ósk um það, eins og segir á vef Samfylkingarinnar.

Orðsendingu Katrínar til félaga sinna í Samfylkingunni má sjá í heild sinni hér að neðan:

Kæru félagar,

spennandi og krefjandi tímar eru framundan hjá okkur sósíaldemókrötum á Íslandi. Stærsta verkefnið er að mynda samhenta sveit sem tryggir sterka rödd jöfnuðar, réttlætis, gagnsæis og frelsis í pólitískri umræðu og aðgerðum.

Í yfir 20 ár hefur hreyfing jafnaðarmanna treyst mér fyrir ólíkum verkefnum, þar af hafið þið falið mér það mikilvæga verkefni að sitja á Alþingi Íslendinga sl. 13 ár. Þar hef ég á hverjum degi lagt mig fram um að gera mitt allra besta í mörgum ólíkum hlutverkum; í störfum nefnda, í forystu iðnaðarnefndar, í forystu EFTA/EES þingmannanefndarinnar ásamt því að gegna embætti iðnaðarráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra.

Um leið og ég þakka ykkur fyrir þetta traust sem þið hafið sýnt mér, finnst mér mikilvægt að deila með ykkur ákvörðun sem ég hef tekið.

Mörg ykkar hafið skorað á mig undanfarið að sækjast eftir frekara forystuhlutverki í okkar hreyfingu nú á þessu vori og fyrir það traust og þá vináttu sem þið sýnið mér er ég afar þakklát. Ég hef hinsvegar tekið þá ákvörðun að sækjast ekki eftir endurkjöri í næstu alþingiskosningum og þar af leiðandi mun ég ekki bjóða fram krafta mína til frekari forystustarfa fyrir Samfylkinguna. Ákvörðun mín um að þetta verði mitt síðasta kjörtímabil sem ykkar fulltrúi á þingi er persónuleg, ég finn að nú er rétti tíminn til að snúa mér að öðru. Á sama tíma og ég mun sakna samstarfsins við ykkur þá er ég líka spennt fyrir framtíðarævintýrum. Ég er lánsöm. Á fallega fjölskyldu, elska lífið og ætla að halda áfram að grípa ný og spennandi tækifæri með báðum höndum.

Ný flott kynslóð stjórnmálamanna á öllum aldri bankar nú á dyrnar. Þeim eigum við að fagna og treysta til að bera kyndil hugsjóna okkar inn í nýja tíma. Vil ég jafnframt nota þetta tækifæri til að hvetja ungt fólk til að láta til sín taka í stjórnmálum og móta þannig framtíðina við hlið reynsluboltanna.

Þetta er ekki kveðjubréf - það kemur þegar ég læt af störfum:)

Látum komandi misseri einkennast af gerjun og kraumandi umræðu um hugmyndir og framtíðarlausnir á verkefnunum sem við blasa.

Hlakka til að taka þátt í því með ykkur!

Ykkar,

Katrín


Tengdar fréttir

Árni Páll: Mistökin allt ábendingar frá flokksmönnum

Árni Páll Árnason formaður Samfylkingarinnar segir að bréf hans til flokksmanna þar sem tíundaðar eru mögulegar ástæður fylgistaps flokksins sé afrakstur ábendinga sem honum hafi borist frá almennum flokksmönnum bæði bréflega og á fundum vítt og breitt um landið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×