Enski boltinn

Mark Gylfa tryggði Swansea næstum því þriðja sigurinn í röð | Sjáið markið hans Gylfa

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Gylfi Þór Sigurðsson fagnar marki sínu í kvöld.
Gylfi Þór Sigurðsson fagnar marki sínu í kvöld. vísir/getty
Gylfi Þór Sigurðsson og félagar í Swansea City voru ótrúlega nálægt því að landa dýrmætum útisigri á móti West Bromwich Albion í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.

Gylfi kom Swansea í 1-0 á 63. mínútu og þannig var staðan þar til í uppbótartíma leiksins þegar José Salomón Rondón náði að skora jöfnunarmarkið eftir mikla orrahríð upp við mark Swansea.

Swansea var búið að vinna tvo deildarleiki í röð og Gylfi hélt uppteknum hætti á nýju ári.

Gylfi var nálægt því að skora í fyrri hálfleiknum þegar Ben Foster varði langskot hans.

Ben Foster kom hinsvegar engum vörnum við þegar Gylfi stakk sér inn í teiginn á 63. mínútu og skoraði með hnitmiðuðu skoti í fjærhornið.

Þetta var fjórða deildarmark hans á árinu í fimm leikjum ársins 2016. Gylfi hefur alls skorað sex mörk í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili.

Leikmenn West Bromwich Albion gáfust ekki upp og náðu inn jöfnunarmarki í uppbótartíma. José Salomón Rondón potaði þá boltanum yfir marklínuna eftir ítrekaða nauðvörn varnarmanna Swansea.

Þetta var gríðarlega svekkjandi fyrir Gylfa og félagar sem voru svo ótrúlega nálægt því að landa þriðja sigrinum í röð.

Swansea er nú með 26 stig í 16. sæti og er nú fimm stigum frá fallsæti en Newcastle á leik inni annað kvöld.

Ben Foster varði gott langskot frá Gylfa Mark Gylfa Þórs Sigurðssonar



Fleiri fréttir

Sjá meira


×