Óeirðir á Haítí: Síðari umferð forsetakosninganna frestað Atli Ísleifsson skrifar 22. janúar 2016 23:24 Andstæðingar forsetans hafa sakað hann um kosningasvindl. Vísir/AFP
Kjörstjórn á Haítí hefur frestað seinni umferð forsetakosninganna í landinu sem áttu að fara fram á sunnudag. Öryggissjónarmið eru sögð liggja að baki ákvörðuninni. Formaður kjörstjórnar, Pierre-Louis Opon, segir að síðustu daga hafi ítrekað verið ráðist á fulltrúa kjörstjórnar, auk þess að kveikt hafi verið í fjölda kjörstaða og þeir brunnið til grunna. Tugþúsundir hafa mótmælt á götum höfuðborgarinnar Port-au-Prince í vikunni og hafa fulltrúar alþjóðlegs kosningaeftirlits lýst yfir miklum áhyggjum af hinu pólitíska ástandi í landinu. Síðast á fimmtudaginn hafnaði fráfarandi forsetinn Michel Martelly beiðni stjórnarandstöðunnar um að fresta síðari umferð forsetakosninganna. Stjórnarskrá landsins kemur í veg fyrir að Martelly geti boðið sig fram að nýju, en þess í stað hefur hann lýst yfir stuðningi við Jovenel Moise sem hlaut flest atkvæði í fyrri umferð kosninganna í október. Andstæðingar forsetans hafa sakað hann um kosningasvindl og sagði Jude Celestin, sem hlaut næstflest atkvæði í fyrri umferð kosninganna, að hann hugðist ekki taka þátt í síðari umferðinni og lýsti kosningunum sem „farsa“. Kjörtímabil Martelly er á enda eftir þrjár vikur.Vísir/AFP
Mest lesið Kolbeinn Sigþórsson ákærður fyrir brot gegn barnungri stúlku Innlent Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Innlent „Það er norskur sigur í dag“ Innlent Halla vill skikka ungmenni í samfélagsþjónustu Innlent Íslendingur í gæsluvarðhaldi vegna Hamraborgarmálsins Innlent Samþykktu verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli Innlent Útimarkaðurinn í Mosó hættir Innlent Betra að fá óþægilegu málin fram fyrr en seinna Innlent Hárgreiðslustóll ekki hættulegt tæki og konan fær engar bætur Innlent Búinn að skila inn undirskriftum eftir „óvenjulegan“ frest Innlent Fleiri fréttir Segir fólk eiga rétt til mótmæla en ekki til óreiðu Umfangsmikil mótmæli vegna „rússneskra“ laga í Georgíu Enn í basli með skemmdir á hitaskildi Orion Vornanen kastað úr þingflokknum Hafa engin varnarvirki til að hörfa í Yfirstandandi kosningar á Englandi prófsteinn fyrir Íhaldsflokkinn Viðbrögð Hamas við vopnahléstillögunum „neikvæð“ Hundruð lögreglumanna í viðbragðsstöðu vegna mótmæla í UCLA Vilja endurupptöku í máli Weinstein Þrjú hundruð handtekin í Columbia-háskóla Stuðningur við dönsku ríkisstjórnina aldrei verið minni Mótmælendur og gagnmótmælendur tókust á Trump sektaður um meira en milljón króna Rússar sagðir nota skotflaugar frá Norður-Kóreu Þrettán ára drengur stunginn til bana með sverði Særði minnst fimm með sverði í Lundúnum Íslendingur sem lúbarði lögreglumenn í Varsjá þarf að borga brúsann Fjórir lögreglumenn skotnir til bana í Charlotte Rostungur sem fannst í fyrra drapst af völdum fuglaflensu Hvetur Hamas til að ganga að rausnarlegum tillögum Ísrael Flugvöllur Færeyinga fær að taka við stærri þotum Yousaf segir af sér sem ráðherra og formaður Skoska þjóðarflokksins Sánchez hættir við að segja af sér Grafið undan fjölmiðlafrelsinu víða í Evrópu Vopnahlé í sjónmáli? Tveir látnir eftir að bíll hafnaði í sjónum við Stokkhólm Fjölmenn mótmæli vegna ofbeldisbylgju í Ástralíu Vasaúr ríkasta manns Titanic seldist á 210 milljónir Þúsundir hvöttu Sánchez til að segja ekki af sér Skoða að færa Mónu Lísu í eigið herbergi Sjá meira