Handbolti

Dagur: Við gefumst ekki upp

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Dagur Sigurðsson.
Dagur Sigurðsson. Vísir/Getty
Dagur Sigurðsson hefur náð ótrúlegum árangri með þýska landsliðið á EM í handbolta þrátt fyrir að margir lykilmenn eru frá vegna meiðsla.

Fyrir mótið duttu þeir Uwe Gensheimer, Patrick Groetzki, Patrick Wiencek, Michael Allendorf og Paul Drux allir úr leik vegna meiðsla. Engu að síður hafa Þjóðverjar nú afrekað að vinna fjóra leiki í röð eftir að hafa tapað fyrir Spánverjum í fyrsta leik.

Þýskaland á fyrir vikið möguleika á að komast í undanúrslit mótsins en má ekki við því að tapa fyrir Danmörku, liði Guðmundar Guðmundssonar, á miðvikudag.

En enn og aftur urðu Þjóðverjar fyrir áfalli þegar þeir fyrirliðinn Steffen Weinhold og stórskyttan Christian Dissinger meiddust báðir í leik liðsins gegn Rússlandi í fyrradag. Þeir spila ekki meira á EM og hefur Dagur kallað á þá Julius Kuhn og Kai Häfner í þeirra stað.

Sjá einnig: Dagur verður án tveggja af sínum bestu mönnum í uppgjörinu gegn Guðmundi

„Þetta er einfaldlega minniháttar áfall fyrir okkur,“ sagði Dagur við þýska fjölmiðla í gær. „Í sannleika sagt er þetta skref til baka fyrir okkur.“

Hann hefur misst út nánast heilt byrjunarlið vegna meiðsla. „Það er rétt, við erum að fara í leikinn gegn Danmörku með hálfgert B-lið. Danmörk er eitt sigurstranglegasta liðið á EM og hefur enn ekki tapað leik. Staðreyndin er sú að við höfum misst að minnsta kosti einn mann í hverri einustu stöðu.“

Dagur ákvað strax í lok desember að hann myndi ekki ræða meira um meiðsli leikmanna sinna og einbeita sér að því jákvæða. Og þrátt fyrir allt heldur hann enn í vonina. „Við höldum áfram að reyna og gerum okkar allra besta. Við munum ekki gefast upp.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×