Straumur flóttafólks til Evrópu: ESB saka Grikki um alvarlega vanrækslu Atli Ísleifsson skrifar 27. janúar 2016 13:36 Grikkir hafa átt í vandræðum með að takast á við straum flóttafólks frá Miðausturlöndum. Vísir/AFP
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins sakar í nýrri skýrslu grísk yfirvöld um að hafa alvarlega vanrækt skyldur sína þegar kemur að stjórnun á ytri landamærum sambandsins. Fleiri hundruð þúsunda flóttamanna hafa komið frá Miðausturlöndum til Evrópu, um Grikkland síðustu mánuði. Mat framkvæmdastjórnarinnar var gert í nóvember síðastliðinn og lýsir víðtækum vanköntum þegar kemur að stjórnun grískra yfirvalda á ástandinu. Grikkir eru aðilar að Schengen-svæðinu og því skyldugir til að stjórna komu fólks frá ríkjum utan Schengen og inn á svæðið. Yfirvöld hafa fengið þriggja mánaða frest til að bæta ástandið. Rúmlega 850 þúsund flóttamenn komu til Grikklands á síðasta ári. 44 þúsund til viðbótar hafa komið til landsins það sem af er ári, flestir frá meginlandi Tyrklands og til eyjanna Lesbos, Samos og Kos. Í skýrslu framkvæmdastjórnarinnar segir að Grikkir hafi ekki framkvæmt skráningar, tekið fingraför og skráð nöfn flóttafólks líkt og lög gera ráð fyrir.Í frétt BBC segir að ef grísk yfirvöld séu ekki fær um að gera nauðsynlegar breytingar muni framkvæmdastjórnin mögulega veita öðru Schengen-ríki heimild til að koma upp tímabundnu landamæraeftirliti á innri landamærum svæðisins.
Flóttamenn Mest lesið Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Innlent Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Innlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu Innlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Myndband sýnir árás Diddy Erlent „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Innlent „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Innlent Fleiri fréttir Myndband sýnir árás Diddy Færeyingar felldu frumvarp um fóstureyðingar Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Vill bjóða NATO að byggja nýjan flugvöll í Færeyjum Þorir að veðja bjór á að hún verði áfram forsætisráðherra Lokað á grein um barnadráp í Bretlandi Drápu fangaverði og hjálpuðu fanga að strjúka Sjá meira