Þrjátíu ár liðin frá Challenger-slysinu Atli ísleifsson skrifar 28. janúar 2016 10:34 Um borð voru sex geimfarar á vegum auk kennarans Christa McAuliffe sem átti að verða fyrsti almenni borgarinn til að fara út í geim. Vísir/Getty
Þrjátíu ár eru í dag liðin frá Challenger-slysinu þar sem sjö bandaríkir geimfarar fórust þegar sprenging varð 73 sekúndum eftir að flauginni var skotið á loft. Challenger var þá á leið í sínu tíundu geimferð en henni var skotið á loft frá Caneveral-höfða á Flórída. Geimskotið var sýnt í sjónvarpi og fylgdust því fjölmargir með slysinu í beinni útsendingu. Um borð voru sex geimfarar á vegum bandarísku geimvísindastofnunarinnar NASA – þau Michael J. Smith, Dick Scobee, Ronald McNair, Ellison Onizuka, Gregory Jarvis og Judith Resnik – auk kennarans Christa McAuliffe sem átti að verða fyrsti almenni borgarinn til að fara út í geim. Challenger-slysið, sem varð þann 28. janúar 1986, er mannskæðasta slysið í sögu geimferða ásamt Columbia-slysinu árið 2003 þar sem geimflaugin sprakk þegar hún var á leið aftur til jarðar.Challenger var að fara í sína tíundu geimferð.Vísir/Getty14 kílómetra frá jörðuChallenger var í um fjórtán kílómetra hæð yfir jörðu og á næstum tvöföldum hljóðhraða, um 2.040 kílómetra hraða þegar sprengingin varð.Í grein Vísindavefsins kemur fram að á hljóðupptökum megi heyra seinustu orð geimfarans Michael Smith, sem hafi einfaldlega verið „Uh-oh!“, en örskömmu síðar hafi ferjan svo tvístrast. Þar kemur fram að þvert á algengan misskilning hafi það ekki verið geimferjan sjálf sem sprakk heldur brotnaði hún upp af völdum eldflauganna sem knúðu hana áfram. Hafi sprengingin orðið vegna galla í svonefndum O-hring sem er úr gúmmíi og heldur saman samskeytum eldflauganna við eldsneytistankinn.Ronald Reagan Bandaríkjaforseti ávarpaði þjóð sína eftir slysið.Vísir/GettyEkki hannaðir til að þola mikinn kuldaMikið frost var nóttina fyrir geimskotið, um átta stig, sem er óvenjulega kalt fyrir Flórída. „Aldrei áður hafði lofthiti fyrir geimskot verið undir ellefu gráðum og voru O-hringirnir ekki hannaðir til að standast svo mikinn kulda. Að lokum gáfu þeir sig sem olli því að 3.313 gráðu heitt gas innan úr eldflauginni seytlaði út og leiddi að lokum til sprengingar og tvístrunar geimferjunnar.“ Miklar vindhviður voru einnig á svæðinu og áttu sinn þátt í að geimferjan fórst.Lifðu af upphaflegu sprenginguna Á Vísindavefnum segir að allar líkur séu á að geimfararnir hafi lifað upphaflegu sprenginguna af og ef til vill ekki látist fyrr en tveimur og hálfri mínútu síðar þegar hylkið sem þeir voru í skall í sjóinn á 320 kílómetra hraða. „Þegar óhappið varð var hylkið á svo mikilli ferð upp á við að það hélt áfram upp í næstum 20 km áður en það fór að falla aftur til jarðar. Á myndum NASA sést áhafnarhylkið falla út úr skýinu í heilu lagi. Rafmagns- og súrefnissamband hafði þá rofnað og því hugsanlegt að geimfarnir hafi misst meðvitund vegna súrefnisskorts. Í geimbúningunum eru hins vegar neyðarbirgðir af súrefni og af þeim fjórum sem fundust hafði verið kveikt á þremur og hluti birgðanna nýttur. Þetta bendir til þess að hluti áhafnarinnar hafi að minnsta kosti lifað nógu lengi til að ræsa búnaðinn,“ segir á Vísindavefnum.NASA minnist slyssins á heimasíðu sinni í dag.
Mest lesið Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Innlent Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu Innlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Innlent Myndband sýnir árás Diddy Erlent Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Innlent „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Innlent Fleiri fréttir Myndband sýnir árás Diddy Færeyingar felldu frumvarp um fóstureyðingar Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Vill bjóða NATO að byggja nýjan flugvöll í Færeyjum Þorir að veðja bjór á að hún verði áfram forsætisráðherra Lokað á grein um barnadráp í Bretlandi Drápu fangaverði og hjálpuðu fanga að strjúka Sjá meira