Taka ekki þátt í friðarviðræðunum 28. janúar 2016 23:38 Riad Hijab, fyrrverandi forsætisráðherra Sýrlands. vísir/afp
Fulltrúar sýrlensku stjórnarandstöðunnar ætla ekki að taka þátt í friðarviðræðum um Sýrlandsstríðið sem eiga að hefjast í Genf á morgun. Þeir segjast fyrst þurfa að ná samkomulagi um að loftárásum á hernumdum svæðum verði hætt. Riad Hijab, fyrrverandi forsætisráðherra Sýrlands, sem fer fyrir hópnum, sagði í yfirlýsingu sinni að stjórnarandstaðan myndi ekki mæta á fundinn nema kröfum hennar yrði mætt. Samninganefnd stjórnvalda hefur boðað komu sína en talið er ólíklegt að samkomulag náist á milli stjórnar- og stjórnarandstöðu. Bundnar hafa verið verið vonir við að skriður kæmist á friðarumleitanir í Sýrlandi, en Staffan de Mistura, erindreki Sameinuðu þjóðanna, hefur lýst því yfir að þessi fundur sé líklega síðasta tækifæri Sýrlendinga til að koma á friði. Erfiðlega hefur gengið að koma stríðandi fylkingum að samningaborðinu. Fyrsta tilraun til að halda friðarviðræður fyrir tveimur árum bar ekki árangur, en stríðið hefur nú staðið yfir frá árinu 2011. Þá var stefnt að því að hefja þær 25. þessa mánaðar en var frestað um fjóra daga vegna deilna um skipan í samninganefndir.
Mest lesið Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Innlent Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Innlent Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Innlent Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Segir Helgu fara með rangt mál Innlent Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Gular viðvaranir víðs vegar um landið Veður Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Færeyingar draga í land með ferðamannaskatt Erlent Fleiri fréttir Íranski forsetinn í óljósu þyrluslysi Færeyingar draga í land með ferðamannaskatt Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Ástand Fico enn alvarlegt Býst við aukinni sókn Rússa Beitti neitunarvaldi gagnvart umdeildum fjölmiðlalögum Myndband sýnir árás Diddy Færeyingar felldu frumvarp um fóstureyðingar Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Sjá meira