59 handteknir eftir hryðjuverkaárásina í Istanbúl Atli Ísleifsson skrifar 13. janúar 2016 08:01 Árásin var gerð við Bláu moskuna í Istanbúl. Tíu manns fórust og fimmtán særðust. Vísir/AFP
Lögregla í Tyrklandi hefur handtekið 59 manns vegna gruns um að tengjast hryðjuverkasamtökunum ISIS. Handtökurnar eru gerðar í kjölfar hryðjuverkaárásarinnar í Istanbúl þar sem tíu manns fórust, aðallega þýskir ferðamenn.Sky News greinir frá því að húsleit hafi verið gerð á 22 stöðum í suðausturhluta landsins í héruðunum Sanliurfa, Adana og Gazientep. Að sögn tyrkneska fjölmiðilsins Dogan eru þrír Rússar á meðal hinna handteknu, en þeir voru gripnir í Antalya. Recep Tayyip Erdogan Tyrklandsforseti sagði að sjálfsvígssprengjumaðurinn hafi verið sýrlenskur að uppruna og fæddur árið 1988. Ahmet Davutoglu forsætisráðherra sagði hann tengjast hryðjuverkasamtökunum ISIS. Árásin var gerð í Sultanahmet-hverfi Istanbúl-borgar, hjá egypsku broddsúlunni sem stendur við Bláu moskuna. Enginn hefur enn lýst yfir ábyrgð á árásinni. Auk þeirra tíu sem féllu þá særðust fimmtán manns, þeirra á meðal norskir, tyrkneskir, þýskir, perúskir og suður-kóreskir ferðamenn. Undanfarna mánuði hafa nokkrar mannskæðar sprengjuárásir verið gerðar í Tyrklandi. Meira en hundrað manns létu lífið í höfuðborginni Ankara í október, þegar tvær sjálfsvígsárásir voru gerðar þar samtímis. Þá létu meira en þrjátíu manns lífið í júlí í sprengjuárás í bænum Suruc, sem er skammt frá landamærum Sýrlands.
Tengdar fréttir Árásin í Istanbúl: Níu hinna látnu voru Þjóðverjar Lögregla telur að árásarmaðurinn hafi verið sýrlenskur og fæddur árið 1988. 12. janúar 2016 14:40 Öflug sprenging í Istanbúl Tyrkneskir miðlar segja að tíu manns hið minnsta hafi látið lífið í sjálfsvígssprengjuárás í Sultanahmet-hverfinu í morgun. 12. janúar 2016 08:55 Íslamska ríkinu kennt um sjálfsvígsárásina í Istanbúl Sjálfvígsárásarmaður, sem sprengdi sig í loft upp í Istanbúl í gær, varð tíu manns að bana og særði fimmtán. 13. janúar 2016 07:00 Mest lesið Íransforseti fórst í þyrluslysinu Erlent Sat saklaus í unglingafangelsi í tvö ár Innlent Leitin enn ekki borið árangur Erlent Tveir látnir og fimm saknað eftir slys í Dóná Erlent Diddy biðst afsökunar á „ófyrirgefanlegri hegðun“ Erlent Frambjóðendur geti nýtt sér skoðanakannanir Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Varasamt að ferðast á sumardekkjum í kvöld Innlent Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Innlent Stuðningur Katrínar við sóttvarnarlækni sjálfsagður Innlent Fleiri fréttir Íransforseti fórst í þyrluslysinu Leitin enn ekki borið árangur Tveir látnir og fimm saknað eftir slys í Dóná Diddy biðst afsökunar á „ófyrirgefanlegri hegðun“ Óljóst hvort þyrlan sé fundin Íranski forsetinn í óljósu þyrluslysi Færeyingar draga í land með ferðamannaskatt Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Ástand Fico enn alvarlegt Býst við aukinni sókn Rússa Beitti neitunarvaldi gagnvart umdeildum fjölmiðlalögum Myndband sýnir árás Diddy Færeyingar felldu frumvarp um fóstureyðingar Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Sjá meira
Árásin í Istanbúl: Níu hinna látnu voru Þjóðverjar Lögregla telur að árásarmaðurinn hafi verið sýrlenskur og fæddur árið 1988. 12. janúar 2016 14:40
Öflug sprenging í Istanbúl Tyrkneskir miðlar segja að tíu manns hið minnsta hafi látið lífið í sjálfsvígssprengjuárás í Sultanahmet-hverfinu í morgun. 12. janúar 2016 08:55
Íslamska ríkinu kennt um sjálfsvígsárásina í Istanbúl Sjálfvígsárásarmaður, sem sprengdi sig í loft upp í Istanbúl í gær, varð tíu manns að bana og særði fimmtán. 13. janúar 2016 07:00