Enski boltinn

Shearer: Benteke þarf að koma sér inn í teiginn og skapa vandræði

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Christian Benteke er búinn að skora sex deildarmörk.
Christian Benteke er búinn að skora sex deildarmörk. vísir/getty
Christian Benteke, framherji Liverpool, var svo slakur í 2-0 tapinu gegn West Ham um helgina að stuðningsmenn liðsins voru ansi fljótir að gleyma sigurmörkunum tveimur í leikjunum gegn Leicester og Sunderland þar á undan.

Belginn uppskar mikla gagnrýni fyrir frammistöðu sína gegn West Ham, en Benteke tekur virkan þátt í uppspili liðsins og er mikið fyrir utan vítateig að leita að sendingum og horfir lítið á markið.

Alan Shearer, markahæsti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar frá upphafi, tók Benteke fyrir í Match of the Day á BBC um helgina og hvatti þennan stóra og stæðilega framherja til að koma sér inn í teiginn.

„Hans helsti styrkleiki er að skalla boltann og ég treysti honum til að fara upp á móti hvaða varnarmanni sem er,“ sagði Shearer, en auðvitað verður þjálfaralið Liverpool líka að átta sig á þessu. Benteke fer bara eftir því sem honum er sagt.

„Ég veit ekki af hverju hann kemur svona mikið á móti boltanum. Hann þarf að koma sér inn í teiginn, vera til vandræða og gera varnarmönnunum lífið leitt. Þannig mun hann skora miklu fleiri mörk.“

„Leikmenn Liverpool og starfsliðið þarf að skilja það líka, að ef Liverpool ætlar að fá það besta út úr Benteke verða að koma fleiri boltar inn á teiginn,“ sagði Alan Shearer.

Benteke er búinn að skora sex mörk í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili.


Tengdar fréttir

Klopp ósáttur: Áttum skilið að tapa þessum leik

Jurgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, var ósáttur með spilamennsku sinna manna í 0-2 tapi gegn West Ham í dag en hann segir leikmenn sína hafa ekki átt neitt skilið úr leiknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×