Shearer: Benteke þarf að koma sér inn í teiginn og skapa vandræði Tómas Þór Þórðarson skrifar 4. janúar 2016 07:45 Christian Benteke er búinn að skora sex deildarmörk. vísir/getty
Christian Benteke, framherji Liverpool, var svo slakur í 2-0 tapinu gegn West Ham um helgina að stuðningsmenn liðsins voru ansi fljótir að gleyma sigurmörkunum tveimur í leikjunum gegn Leicester og Sunderland þar á undan. Belginn uppskar mikla gagnrýni fyrir frammistöðu sína gegn West Ham, en Benteke tekur virkan þátt í uppspili liðsins og er mikið fyrir utan vítateig að leita að sendingum og horfir lítið á markið. Alan Shearer, markahæsti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar frá upphafi, tók Benteke fyrir í Match of the Day á BBC um helgina og hvatti þennan stóra og stæðilega framherja til að koma sér inn í teiginn. „Hans helsti styrkleiki er að skalla boltann og ég treysti honum til að fara upp á móti hvaða varnarmanni sem er,“ sagði Shearer, en auðvitað verður þjálfaralið Liverpool líka að átta sig á þessu. Benteke fer bara eftir því sem honum er sagt. „Ég veit ekki af hverju hann kemur svona mikið á móti boltanum. Hann þarf að koma sér inn í teiginn, vera til vandræða og gera varnarmönnunum lífið leitt. Þannig mun hann skora miklu fleiri mörk.“ „Leikmenn Liverpool og starfsliðið þarf að skilja það líka, að ef Liverpool ætlar að fá það besta út úr Benteke verða að koma fleiri boltar inn á teiginn,“ sagði Alan Shearer. Benteke er búinn að skora sex mörk í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili.
Enski boltinn Tengdar fréttir Klopp ósáttur: Áttum skilið að tapa þessum leik Jurgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, var ósáttur með spilamennsku sinna manna í 0-2 tapi gegn West Ham í dag en hann segir leikmenn sína hafa ekki átt neitt skilið úr leiknum. 2. janúar 2016 15:45 Benteke aftur hetja Liverpool | Sjáðu markið Liverpool lyfti sér upp í 7. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 0-1 sigri á Sunderland í kvöld. Þetta var síðasti leikur ársins í úrvalsdeildinni. 30. desember 2015 21:30 Carroll innsiglaði sigurinn gegn Liverpool | Sjáðu mörkin West Ham skaust upp fyrir Liverpool í 5. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 2-0 sigri á Liverpool í dag en fyrrum leikmaður Liverpool innsiglaði sigurinn með öðru marki West Ham í seinni hálfleik. 2. janúar 2016 14:30 Mest lesið Var spáð falli en eru á leið í Meistaradeildina Fótbolti „Eins og að spila við landslið Þýskalands nasismans“ Sport Verstappen á ráspól og jafnaði 35 ára gamalt met Formúla 1 Lowry hástökkvari dagsins og blandar sér í baráttuna Golf Ótrúlegir yfirburðir tryggðu tíunda bikarmeistaratitilinn Fótbolti Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Enski boltinn Stutt gaman hjá Birki er Brescia missti af sæti í efstu deild Fótbolti Uppgjörið,viðtöl og myndir: Valur - Olympiacos 30-26 | Einum leik frá Evróputitli Handbolti AC Milan hleypti Torino inn í Evrópubaráttu Fótbolti Reykti tvo pakka, át fjögur súkkulaðistykki og drakk tvær kókdósir á fyrsta hringnum Golf Fleiri fréttir Hayes kvaddi Chelsea með fimmta titlinum í röð og Dagný komin í hóp De Zerbi hættir hjá Brighton Foden valinn bestur á Englandi Arteta vonast eftir hjálp frá Moyes: „Vonandi gerist eitthvað dásamlegt“ Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Jóhann Berg fer frá Burnley í sumar Meiðslapésarnir fara frá Liverpool Slot staðfestir að hann taki við Liverpool Vill komast hjá því að afhenda City bikarinn Klopp enn fúll út í Maddison eftir að Liverpool missti af titlinum 2019 Leeds í úrslit um sæti í ensku úrvalsdeildinni Tímabilið búið hjá Ederson og City treystir á Ortega í síðustu tveimur leikjunum Chelsea sló spjaldametið í deildinni Hjólaði frá Mongólíu og grét af gleði þegar hann hitti hetjuna Umboðsmaður Olise dæmdur í sex mánaða bann Rashford reiður og reifst við áhorfanda fyrir leik Man. United sagði konunum ekki frá ákvörðuninni Rooney segir United losa sig við nær allan leikmannahópinn Gerir sér grein fyrir erfiðu tímabili: „Þið eruð bestu stuðningsmenn í heimi“ United lyfti sér upp að hlið Newcastle Evrópudraumurinn lifir góðu lífi eftir fjórða sigurinn í röð Everton boðið neyðarlán til að klára nýja heimavöllinn Félagaskiptaglugganum lokað fyrr en vanalega í sumar Stjóri Spurs ósáttur við viðhorfið: „Þetta er utan félagsins, innan þess, alls staðar“ Segir að Ortega hafi unnið titilinn fyrir City Ten Hag vísar gagnrýni Rooneys til föðurhúsanna United íhugar að ráða stjóra Ipswich sem eftirmann Ten Hags Telja að Bruno verði áfram á Old Trafford Sagði sína menn hafa þurft að þjást og hrósaði varamarkverðinum Varamarkmaðurinn og Håland hetjurnar: Man City á toppinn fyrir lokaumferðina Sjá meira
Klopp ósáttur: Áttum skilið að tapa þessum leik Jurgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, var ósáttur með spilamennsku sinna manna í 0-2 tapi gegn West Ham í dag en hann segir leikmenn sína hafa ekki átt neitt skilið úr leiknum. 2. janúar 2016 15:45
Benteke aftur hetja Liverpool | Sjáðu markið Liverpool lyfti sér upp í 7. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 0-1 sigri á Sunderland í kvöld. Þetta var síðasti leikur ársins í úrvalsdeildinni. 30. desember 2015 21:30
Carroll innsiglaði sigurinn gegn Liverpool | Sjáðu mörkin West Ham skaust upp fyrir Liverpool í 5. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 2-0 sigri á Liverpool í dag en fyrrum leikmaður Liverpool innsiglaði sigurinn með öðru marki West Ham í seinni hálfleik. 2. janúar 2016 14:30