Enski boltinn

Klopp: Sturridge hefur ekki náð að mæta á nærri því allar æfingar

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Daniel Sturridge og Jürgen Klopp.
Daniel Sturridge og Jürgen Klopp. Vísir/Getty
Daniel Sturridge verður ekki með Liverpool-liðinu á móti Stoke í undanúrslitum enska deildabikarsins í vikunni. Hann er orðinn góður af meiðslunum en er ekki í nógu góðu formi.

Knattspyrnustjórinn Jürgen Klopp staðfesti þetta á blaðamannafundi í dag og fór um leið yfir stöðu mála hjá enska landsliðsframherjanum.

Liverpool hefur verið í miklum framherjavandræðum og er bara búið að skora 22 mörk í 20 leikjum. Eins og staðan er nú þá er Christian Benteke eini framherjinn sem er heill en Sturridge, Divock Origi og Danny Ings eru allir á sjúkralistanum.

Daniel Sturridge spilaði síðast í 2-0 tapi á móti Newcastle 6. desember en hefur náð sér af meiðslum aftan í læri. Klopp mun hinsvegar ekki nota Sturridge fyrr en hann er búinn að ná góðri æfingalotu.

„Kannski hafið þið það á tilfinningunni að Daniel sé búinn að æfa með okkur undanfarnar þrjár vikur og sé að komast í betra form á hverjum degi. Það er samt ekki þannig," sagði Jürgen Klopp.

„Daniel er búinn að vera að glíma við smá vandamál á þessum tíma, ekkert alvarlegt en nógu slæmt til þess að hann hefur misst úr æfingar vegna þeirra. Þegar hann hefur náð mörgum æfingum í röð þá mun ég velja hann í liðið," sagði Klopp og bætti við:

„Ég verð fyrstur til að taka hann inn þegar hann er klár. Ég ætla ekki að halda aftur af honum. Það væri vissulega auðvelt fyrir mig að freistast til þess að taka hann inn af því að okkur vantar mörk en við verðum að vera þolinmóðir," sagði Klopp.

Daniel Sturridge hefur ekki náð fullu undirbúningstímabili síðan 2011 og hefur misst af stórum hluta síðustu tveggja tímabila. Hvort plan Klopp finnur góðan endi á meiðslasögunni miklu verður að koma í ljós en Sturridge verður allavega ekki með á móti Stoke á Britania-leikvanginum annað kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×