Ekki lengur gullúr Una Margrét Jónsdóttir skrifar 4. ágúst 2015 07:00 Árið 2007 var rekstrarformi Ríkisútvarpsins breytt og það var gert að opinberu hlutafélagi: Ríkisútvarpinu ohf. Í leiðara Morgunblaðsins 25. 1. 2007 var hneykslast á þeim stjórnmálamönnum sem höfðu haldið því fram að eftir breytinguna yrði frekar gengið á rétt starfsmanna. Sagði Morgunblaðið að starfsmenn Ríkisútvarpsins ættu einmitt að fagna breytingunum því reynslan af hlutafélagavæðingu ríkisstofnana sýndi „að þar losnar yfirleitt úr læðingi sá kraftur og hæfileikar, sem búa í starfsfólki en hið dauða stofnanaskipulag drepur niður“. Nú eru 8 ár síðan þessi orð voru rituð. Á þeim tíma höfum við starfsmenn Ríkisútvarpsins tvisvar orðið að þola gífurlegar fjöldauppsagnir vegna sparnaðar og nú fyrir skömmu var sagt upp tveimur úrvals dagskrárgerðarmönnum á Rás 1, Hönnu G. Sigurðardóttur og Sigríði Stephensen, þó að enginn sparnaður kallaði á þessar uppsagnir. Því fór fjarri að Hanna og Sigríður hefðu nokkuð brotið af sér í starfi, þvert á móti höfðu þær verið vinsælir og virtir dagskrárgerðarmenn um árabil. „Losnar úr læðingi kraftur og hæfileikar“ sagði Morgunblaðið 2007. Já, „losnar“ er rétta orðið, losnar burt frá stofnuninni því starfsmönnum sem sýna að þeir hafa kraft og hæfileika til að bera er sparkað. Og ef við sem eftir sitjum eigum eftir einhverja krafta eða hæfileika er það með naumindum að við getum haldið þeim við, svo mjög hafa sífelldar uppsagnir og óvirðing við starfsfélaga okkar gengið nærri okkur, og við lifum í sífelldum ótta um að missa starfið. Þetta er sú sæla sem breyting Ríkisútvarpsins í hlutafélag hefur fært starfsmönnum þess. Sagt er að áður hafi það verið venja að fyrirtæki gæfi þeim starfsmanni gullúr sem átti að baki margra ára farsælan feril hjá stofnuninni. Þetta tíðkast ekki lengur. Nú er uppsagnarbréf þau verðlaun sem fólk hlýtur fyrir áratuga gott starf. Þegar Magnús Geir Þórðarson var ráðinn útvarpsstjóri fyrir rúmu ári vorum við starfsfólkið í sárum eftir mikla uppsagnahrinu sem framkvæmd var á svo ruddalegan hátt að þess eru fá dæmi. Við vonuðum heitt að með nýjum yfirmönnum myndu renna upp nýir og betri tímar, komið yrði fram við starfsfólk af virðingu, trúmennska og góður árangur í starfi yrðu metin að verðleikum. Vegna þessarar vonar höfum við reynt að taka flestum ákvörðunum nýrra yfirmanna með jákvæðu hugarfari, t.d. breytingum á húsnæði, þó að þær hafi haft talsverð óþægindi í för með sér. „Mann langar svo mikið til þess að þetta gangi!“ sagði Sigríður Stephensen við mig einu sinni á liðnu ári. Okkur grunaði ekki þá að uppsögn hennar væri skammt undan. Það eru óumræðileg vonbrigði að það skuli vera þau skilaboð sem nýir yfirmenn kjósa að senda góðum og reyndum starfsmönnum. Ætlar þessari uppsagnamartröð þá aldrei að ljúka? Við förum ekki fram á mikið. Það er enginn að biðja um gullúr. En getur það verið að það sé ekki mögulegt nú á 21. öldinni að verðlauna fyrir gott starf og trúmennsku öðruvísi en með uppsagnarbréfi? Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Halldór 18.05.2024 Halldór Kjósum Katrínu Kjartan Ragnarsson Skoðun Baldur Þórhallsson er vitur og vís Bryndís Friðgeirsdóttir Skoðun „Ég skal baka fyrir Gunnar en ég kýs Kristján“ Páll Magnússon Skoðun Því miður ekkert annað í stöðunni en að fresta atkvæðagreiðslu um verkefni Heidelberg Gestur Þór Kristjánsson,Erla Sif Markúsdóttir,Sigurbjörg Jenný Jónsdóttir,Grétar Ingi Erlendsson Skoðun Forsetaframbjóðendur undir áhrifum Kremlverja? Bjarni Már Magnússon Skoðun Sagan sem verður að segja Drífa Snædal Skoðun Ráðherra Kári Stefánsson Skoðun Misskiljum ekki neitt Jón Helgi Björnsson Skoðun Forseti Íslands, Baldur Þórhallsson Friðrik Erlingsson Skoðun Skoðun Skoðun Því miður ekkert annað í stöðunni en að fresta atkvæðagreiðslu um verkefni Heidelberg Gestur Þór Kristjánsson,Erla Sif Markúsdóttir,Sigurbjörg Jenný Jónsdóttir,Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Baldur Þórhallsson er vitur og vís Bryndís Friðgeirsdóttir skrifar Skoðun Kjósum Katrínu Kjartan Ragnarsson skrifar Skoðun Neikvæð áhrif þess að útiloka forsetaframbjóðendur frá kappræðum strax komin í ljós Ástþór Magnússon skrifar Skoðun Nýtt sveitarfélag Halla Signý Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Stafrænn ójöfnuður á upplýsingaöld Stella Samúelsdóttir,Alma Ýr Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Varfærnisleg fagnaðarlæti Berglind Sunna Bragadóttir skrifar Skoðun „Ég skal baka fyrir Gunnar en ég kýs Kristján“ Páll Magnússon skrifar Skoðun Daðrað við sölu Björn Sævar Einarsson skrifar Skoðun Rannsóknir á söfnum skapa dýrmæta þekkingu Arndís Bergsdóttr skrifar Skoðun Sagan sem verður að segja Drífa Snædal skrifar Skoðun Nýsköpun innviða Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi fyrirtækja hætta með Rapyd Oddný Björg Rafnsdóttir skrifar Skoðun Forsetaframbjóðendur undir áhrifum Kremlverja? Bjarni Már Magnússon skrifar Skoðun Bréf frá móður Berglind Fríða Viggósdóttir skrifar Skoðun Vill ekki lengur íslenzkan her? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Hafa íslensk fjarskiptafélög málað sig út í horn? Aron Heiðar Steinsson skrifar Skoðun Á Ísland framtíð í NATO? Hilmar Þór Hilmarsson skrifar Skoðun Fjallkonan nýja, hún Katrín Þorvaldur Logason skrifar Skoðun Heilsa íslenskrar þjóðar, samofin framþróun í læknisfræði á Íslandi Theódór Skúli Sigurðsson skrifar Skoðun Njótum reynslu Katrínar Valgerður Bjarnadóttir skrifar Skoðun Katrínu á Bessastaði Brynja Þorbjörnsdóttir skrifar Skoðun Eru stjórnvöld að virða réttindi barna á flótta? Hópur fólks í ungmennaráði UNICEF á Íslandi skrifar Skoðun Forseti Íslands, Baldur Þórhallsson Friðrik Erlingsson skrifar Skoðun Algeng mistök við fasteignakaup og hvernig þú forðast þau Kristín Ósk Þórðardóttir skrifar Skoðun Er ungum mönnum sama um sjófólk? Kjartan Sveinn Guðmundsson skrifar Skoðun Þörfin fyrir heimilislækna Bjarni Jónsson skrifar Skoðun Um lýðræði — Þrjár spurningar til forsetaframbjóðenda Hjörtur Hjartarson skrifar Skoðun 30% kaupmáttaraukning með evru Guðmundur Ragnarsson skrifar Skoðun Halla Tómasdóttir yrði góður forseti Rannveig Guðmundsdóttir skrifar Sjá meira
Því miður ekkert annað í stöðunni en að fresta atkvæðagreiðslu um verkefni Heidelberg Gestur Þór Kristjánsson,Erla Sif Markúsdóttir,Sigurbjörg Jenný Jónsdóttir,Grétar Ingi Erlendsson Skoðun
Skoðun Því miður ekkert annað í stöðunni en að fresta atkvæðagreiðslu um verkefni Heidelberg Gestur Þór Kristjánsson,Erla Sif Markúsdóttir,Sigurbjörg Jenný Jónsdóttir,Grétar Ingi Erlendsson skrifar
Skoðun Neikvæð áhrif þess að útiloka forsetaframbjóðendur frá kappræðum strax komin í ljós Ástþór Magnússon skrifar
Skoðun Heilsa íslenskrar þjóðar, samofin framþróun í læknisfræði á Íslandi Theódór Skúli Sigurðsson skrifar
Skoðun Eru stjórnvöld að virða réttindi barna á flótta? Hópur fólks í ungmennaráði UNICEF á Íslandi skrifar
Skoðun Algeng mistök við fasteignakaup og hvernig þú forðast þau Kristín Ósk Þórðardóttir skrifar
Því miður ekkert annað í stöðunni en að fresta atkvæðagreiðslu um verkefni Heidelberg Gestur Þór Kristjánsson,Erla Sif Markúsdóttir,Sigurbjörg Jenný Jónsdóttir,Grétar Ingi Erlendsson Skoðun