Viðskipti innlent

Endurkoma bókarinnar

Stjórnarmaðurinn skrifar
Tækninýjungum fylgja gjarnan dómsdagsspár um að það sem fyrir er á fleti hljóti að hverfa snarlega. Þannig spáðu menn að útvarpið myndi líða undir lok þegar sjónvarpið kom á vettvang og margir hafa keppst við að spá endalokum hins eða þessa eftir tilkomu internetsins – hvort sem það er verslun upp á gamla mátann, dagblöð eða mannleg samskipti án tilstuðlanar samfélagsmiðla.

Stjórnarmaðurinn las því af nokkurri athygli fréttir af bóksölu frá Bretlandi. Sala á fýsískum bókum er þar nokkuð stöðug, og hefur verið undanfarin ár. Sérstaka athygli vekur hins vegar að sala á barnabókum er í mikilli sókn og hefur aukist um 11% milli ára. Hefur salan ekki verið meiri frá árinu 2007, þegar síðasta bókin um Harry Potter kom út.

Við þetta má bæta að verulega hefur hægst á vexti í sölu á rafbókum. Salan jókst um 11% í fyrra, 19% árið áður og 65% árið þar á undan. Nú er staðan sú að þriðja hver bók sem seld er í Bretlandi er rafbók.

Sú staðreynd að hægst hefur á vexti í sölu rafbóka bendir til þess að jafnvægi sé að nást milli slíkra bóka og fýsískra bóka.

Þetta er hið sama og smám saman hefur gerst varðandi sölu á netinu. Rótgrónir smásalar geta ekki lengur komið með bjartsýnisspár um að brátt verði sala á netinu stærstur hluti heildarsölu og vöxturinn eftir því. Netið er ekki lengur nýtt, heldur nokkurn veginn föst stærð. Fyrir rótgróið vörumerki sem stundað hefur viðskipti upp á gamla mátann, þykir gott ef í mesta lagi þriðjungur sölu fer fram gegnum netið. Þetta vita fjárfestar og aðrir þátttakendur á markaðnum.

Við þetta má bæta að talsverð aukning hefur orðið á lestri tímarita í heiminum eftir tilkomu internetsins.

En svo við víkjum aftur að tölunum frá Bretlandi þá er önnur athyglisverð staðreynd þessi mikli vöxtur í sölu barnabóka. Þetta bendir til þess að foreldrar sem ólust upp við bækur, en urðu fullorðnir með snjallsíma í lófanum vilji að börnin deili þeirri upplifun að halda á bók upp á gamla mátann.

Bóksalar á Íslandi og annars staðar skulu því ekki missa móðinn. Bókin er ekki á leiðinni út heldur mun hún vonandi lifa í sátt og samlyndi við rafbókina.

Spurningin er bara hvar jafnvægið liggur.

Stjórnarmaðurinn er sigldur innherji með puttann á púlsinum. Stjórnarmaðurinn skrifar í Markaðinn í Fréttablaðinu á miðvikudögum og liggur ekki á skoðunum sínum um menn og viðskiptaleg málefni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×