Erlent

Ástvinir halda enn í vonina

jón hákon halldórsson skrifar
Sumir ástvina farþega telja enn möguleika á að einhverjir þeirra séu lifandi.
Sumir ástvina farþega telja enn möguleika á að einhverjir þeirra séu lifandi. NordicPhotos/afp
Þess var minnst í gær að ár var liðið frá því að malasíska flugvélin MH370 hvarf þegar hún var á leið frá Kúala Lúmpúr til Peking. Vélin, eða brak hennar, hefur ekki enn fundist. Stjórnvöld í Malasíu og Ástralíu segja að allt kapp verði lagt á að finna það.

Mikil reiði ríkir hjá aðstandendum þeirra sem fórust með vélinni. Bráðabirgðaskýrsla hefur verið gefin út um slysið. Þeir segja að engar nýjar vísbendingar séu í skýrslunni um það hvað gerðist.

Í skýrslunni má finna mikið af tæknilegum upplýsingum um vélina, viðhald á henni, bakgrunn áhafnarinnar og hvernig eftirliti flugmálayfirvalda með vélinni var háttað. Í skýrslunni eru upplýsingar um að rafhlaða í svarta kassanum hafi verið ónýt sem gæti hafa haft áhrif þegar fyrst var byrjað að leita vélarinnar. Þar eru hins vegar engar haldbærar skýringar á því hvert vélin gæti hafa farið eða hvað hafi orðið um hana.

Sara Bajc missti unnusta sinn, Philip Wood, í slysinu. Hún segir að skýrslan sé gagnslaus og gagnrýnir að rannsakendur hafi einungis tekið skýrslu af 120 manns. „Það er færra fólk en í litlu og lítt fjármögnuðu einkarannsókninni okkar,“ er haft eftir Bajc á fréttavef BBC. Fleiri aðstandendur hafa sagt að rannsóknin sé gagnslaus.

Stjórnvöld í Malasíu telja að líklegasta skýringin á hvarfi vélarinnar sé sú að hún hafi hrapað í suðurhluta Indlandshafs. Þar er hennar enn leitað. En BBC segir að fjölskyldur hinna látnu trúi ekki þessum kenningum vegna fálmkenndra viðbragða þeirra fyrst eftir hvarf vélarinnar. Sú staðreynd að hlutar af braki vélarinnar hafa ekki fundist hafa valdið því að ættingjar halda enn í þá von að í það minnsta einhverjir af hinum 239 farþegum hafi lifað af.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×