Viðskipti innlent

Átta ástæður til að stunda ekki viðskipti á Íslandi

Stjórnarmaðurinn skrifar
1. Það þarf að leggja út tæpar 650 þúsund krónur til að stofna einkahlutafélag. Í Bretlandi þarf tvö hundruð krónur. Þetta skiptir miklu máli fyrir smærri félög.

2. Íslenskir fatakaupmenn greiða tvöfaldan toll af vörukaupum. 15% þegar varningur lendir innan Evrópusambandsins, frá Kína eða sambærilegu framleiðslulandi, og svo aftur við flutning frá Evrópu til Íslands. Eru stjórnvöld undrandi á því að H&M er sagt vera með 30% markaðshlutdeild á Íslandi án þess að reka verslun hér á landi?

3. Fyrirtækjaskrá neyðir þig til að borga 25 þúsund krónur í þjónustugjöld til bankans fyrir að fá skráða íslenska kennitölu á erlent félag. Þetta snýst um eitt eyðublað; það er ekki hlutverk opinberra aðila að innheimta gjöld fyrir einkarekna banka.

4. Afgreiðsla hjá opinberum aðilum á borð við skattayfirvöld og fyrirtækjaskrá er tilviljanakennd, seinvirk, og einkennist af tortryggni. Hvernig má það vera að ekki sé allt orðið rafrænt hjá fyrirtækjaskrá árið 2015?

5. Umræða í fjölmiðlum er óvinveitt erlendum fjárfestum. Kröfuhafar bankanna eru iðulega kallaðir „hrægammar“ eða „hrægammasjóðir“. Vissulega er rétt að í einhverjum tilvikum eru kröfurnar í eigu aðila sem stunda það að fjárfesta í „eitruðum“ eignum. Þó eru þessar kröfur keyptar í samræmi við gildandi reglur, og af fyrri kröfuhöfum sem stofnuðu til viðskipta í góðri trú. Sama gildir um Huang Nobu – tókst einhverjum einhvern tíma að færa sönnur fyrir því að hann gengi erinda vondra kínverskra kommúnista þegar hann sýndi áhuga á að kaupa eyðijörð í einkismannslandi?

6. Óstöðugt stjórnarfar. Kröfuhafar bankanna hafa þurft að búa við stöðugar lagabreytingar og hringlandahátt frá hruni. Við ríkisstjórnarskipti verður nánast alltaf 180 gráðu umturnun á öllum málum. Það er forsenda þess að laða að erlenda fjárfesta, að stöðugleiki sé tryggður. Frá því er langur vegur á Íslandi.

7. Ríkið er með puttana í of mörgum pæum. Opinberir aðilar hafa niðurgreitt innlendar landbúnaðarvörur til sölu erlendis, t.d. í Whole Foods í Bandaríkjunum. Ávinningur íslenskra bænda af því er í besta falli enginn. Þrátt fyrir áratugareynslu af vonlausum útrásardraumum, hafði MS fyrir því að eltast við íslenskan mann sem seldi skyr í Bandaríkjunum, Siggi's Skyr. Siggi náði margföldum árangri MS, með brotabroti af kostnaðinum, og seldi síðar félagið. Væri ekki nær að veita honum verðlaun?

8. Gjaldeyrishöftin.

Stjórnarmaðurinn er sigldur innherji með puttann á púlsinum. Stjórnarmaðurinn skrifar í Markaðinn í Fréttablaðinu á miðvikudögum og liggur ekki á skoðunum sínum um menn og viðskiptaleg málefni.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×