Lífið

Tilnefningar í fleiri flokkum

Gunnar Leó Pálsson skrifar
Dögg Mósesdóttir kvikmyndagerðarkona er ein af þeim sem sjá um að tilnefna plötuumslög ársins og tónlistarmyndbönd ársins.
Dögg Mósesdóttir kvikmyndagerðarkona er ein af þeim sem sjá um að tilnefna plötuumslög ársins og tónlistarmyndbönd ársins. vísir/daníel
Síðustu tilnefningar til Íslensku tónlistarverðlaunanna 2014 liggja fyrir en um er að ræða tilnefningar í flokkunum Nýliðaplata ársins, Bjartasta vonin, Tónlistarmyndband ársins og Plötuumslag ársins.

Almenningur getur tekið þátt í valinu á Nýliðaplötu ársins og Björtustu voninni á vef RÚV.

Þá hefur þriggja manna fagdómnefnd tilnefnt bestu plötuumslög og tónlistarmyndbönd ársins.

Þau Dögg Mósesdóttir kvikmyndagerðarkona, myndlistarmaðurinn og fjölmiðlamaðurinn Goddur og tónlistarmaðurinn Dr. Gunni sáu um að tilnefna plötuumslög ársins og tónlistarmyndbönd ársins líkt og undanfarin tvö ár. Verðlaunin verða veitt í Hörpu, föstudaginn 20. febrúar en sýnt verður beint frá afhendingunni á RÚV. 



Bjartasta vonin í poppi og rokki
:

Júníus Meyvant

Amabadama

Máni Orrason

Vio

Nýliðaplata ársins í boði Coca Cola:

Hekla Magnúsdóttir - Hekla

Russian Girls - Old Stories

Young Karin - n1

Plötuumslag ársins:

Gus Gus - Mexico - Hönnuður: Alex Czetwertynski

Kippi Kanínus - Temperaments - Hönnuðir: Inga og Orri

My Bubba - Goes Abroader - Hönnuður: My Bubba

Prins Póló - Sorrí - Hönnuður: Svavar Pétur Eysteinsson

Úlfur Kolka - Borgaraleg óhlýðni - Hönnuður: Maria Herreros

Tónlistarmyndband ársins:

Dísa - Stones - Leikstjóri: Máni M. Sigfússon

FM Belfast - Brighter Days - Magnús Leifsson

Mammút - Þau svæfa - Leikstjórar: Sunneva Ása Weisshappel og Katrína Mogensen

Rökkurró - The Backbone - Leikstjórar: Sunneva Ása Weisshappel og Anni Ólafsdóttir

Úlfur Úlfur - Tarantúlur - Leikstjóri: Magnús Leifsson






Fleiri fréttir

Sjá meira


×