Viðskipti erlent

Árið 2015 hjá Google

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/Getty/AFP
Lamar OdomJurassic WorldAmerican SniperCaitlyn Jenner og Ronda Rousey. Þetta voru fimm algengustu leitarorðin í leitarvél Google á árinu sem nú fer að ljúka. Tæknirisinn hefur birt upplýsingar og tölfræði um leitir ársins í þessari vinsælu leitarvél. 

Fjölmargir reyndu að forvitnast um árásirnar í París og er það stærsta málefni ársins samkvæmt Google. Þar á eftir koma Óskarsverðlaunin og heimsmeistaramótið í Krikket. Þá var hinn margumræddi kjóll og litur hans mikið á milli tannanna á fólki, sem og nýjasta Star Wars myndin The Force Awakens.

Á vef Google má sjá umfangsmikla og myndræna umfjöllun um árið. Þá má einnig sjá fjölda lista eftir málefnum.

Listum Google er skipt niður á milli fjölda málefna og má þar nefna kvikmyndir, leikkonur, meme og gif. Þar að auki er leitunum skipt niður eftir íþróttafólki, fegurðarspurningum, spurningum um hunda, brúðkaup frægra og tískuspurningar.

Þá er einnig vert að nefna vinsælustu „hvernig á að“ spurningarnar. Sú vinsælasta er hvernig eigi að nota nýjustu uppfærslu Snapchat. Þar á eftir kemur hvernig leysa eigi rubixkubb og hvernig eigi að safna „legendary marks“ úr leiknum Destiny.

Vinsælustu veikindin sem voru gúggluð á árinu eru flensa, sýking í þvagblöðru og mislingar. Af nógu er að taka.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×