Körfubolti

Níu sigrar í röð hjá meisturunum | Myndbönd

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Steph Curry var flottur í nótt.
Steph Curry var flottur í nótt. vísir/getty
NBA-meistarar Golden State Warriors halda áfram á sigurbraut á nýju tímabili, en meistararnir unnu níunda leikinn í röð í nótt og eru enn ósigraðir.

Stephen Curry fór fyrir Warriors sem fyrr og skoraði 28 stig, gaf fimm stoðsendingar og stal fimm boltum í 100-84 sigri á Memphis Grizzliez í nótt.

Besti leikmaður lokaúrslitanna í vor, Andre Igoudala, kom sterkur inn af bekknum og skoraði 20 stig og Harrison Barnes bætti við 19 stigum fyrir meistarana.

Marc Gasol var stigahæstur hjá Memphis með 26 stig auk þess sem hann tók sjö fráköst, em Zach Randolph skoraði 19 stig og tók sjö fráköst.

Trúðaskot frá Curry:


Dirk Nowitzki átti stórleik fyrir Dallas og skoraði 31 stig í flottum 118-108 heimasigri á LA Clippers þar sem allt byrjunarlið Dallas skoraði tíu stig eða meira.

Wesley Matthews skoraði 25 stig fyrir Dallas-liðið sem byrjar nýtt tímabil ágætlega en Blake Briffin var stigahæstur hjá gestunum frá Los Angeles með 21 stig og þá tók hann einnig níu fráköst.

Dirk lætur rigna í Dallas:


San Antonio Spurs er einnig á fínum skriði; búið að vinna sex leiki og tapa aðeins tveimur. Það vann útisigur á Portland í nótt, 113-101.

Nýi maðurinn í liðinu, kraftframherjinn LaMarcus Aldridge, var stigahæstur með 23 stig en Kawhi Leonard skoraði 20 stig og tók sjö fráköst.

Damian Lillard skoraði 22 stig fyrir Portland og C.J. McCollum 21 stig.

Úrslit næturinnar:

Charlotte Hornets - New York Knicks 95-93

Orlando Magic - LA Lakers 101-99

Philadelphia 76ers - Toronto Raptors 103-119

Boston Celtics - Indiana Pacers 91-102

Atlanta Hawks - New Orleans Pelicans 106-98

Dallas Mavericks - LA Clippers 118-108

Houston Rockets - Brooklyn Nets 98-106

Memphis Grizzliez - Golden State Warriors 84-100

Denver Nuggets - Milwaukee Bucks 103-102

Sacramento Kings - Detroit Pistons 101-92

Portland Trail Blazers - San Antonio Spurs 101-113

Alvöru troðsla frá Leonard:
NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×