Innlent

„Ég þarf að minna mig á að hver karl stendur fyrir sjálfan sig en ekki alla kynbræður sína“

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Sigþrúður Guðmundsdóttir.
Sigþrúður Guðmundsdóttir. vísir/gva
„Hryðjuverk og ótti fólks við múslima; ég veit nákvæmlega hvernig þetta er því ég þekki svona ótta. Ég á reyndar ekki í alhæfingarvanda með múslima en ég á stundum í þess háttar vanda með karlmenn. Ég vinn í húsi þar sem ég heyri sögur hundraða kvenna sem hafa verið misnotaðar og beittar ofbeldi af karlmönnum. Sumar "bara" af einum karli en líklega flestar, þegar vel er gáð, af mörgum körlum yfir ævina.“

Svona hefst Facebook-færsla Sigþrúðar Guðmundsdóttur, fræðslu- og framkvæmdastýru Kvennaathvarfsins sem hún setti á síðu sína í gær. Færslan hefur vakið mikla athygli en henni hefur verið deilt tæplega 300 sinnum.

Í færslunni setur Sigþrúður ótta fólks við múslima í samhengi við þann ótta við karlmenn sem hún segist þekkja en hún segir meðal annars:

„Ekki halda að ég þekki ekki vandann sem felst í því að minnihluti hóps hagar sér á þann hátt að það er erfitt að láta það ekki hafa áhrif á það hvernig ég lít á allan hópinn. Ég veit alveg hvernig það er að vera næstum dottin í gryfjuna "konur sem hata karla" og ég veit að það er á mína ábyrgð að passa að ég lendi ekki þar. Ég þarf að minna mig á að hver karl stendur fyrir sjálfan sig en ekki alla kynbræður sína.“

Sigþrúður telur síðan upp ýmsa menn í sínu lífi og tekur dæmi um góðmennsku þeirra. Segir hún að hún verði að muna eftir því að þeir séu ekki fulltrúi allra þeirra karla sem nauðga og niðurlægja. Á sama hátt séu hryðjuverkamennirnir í París ekki fulltrúar allra múslima en Sigþrúður lýkur langri færslu sinni á þessum orðum:

 

„Að tengdasonurinn minn er meiri fulltrúi karla þegar hann pantar einhvern fallegan óþarfa á netinu handa kærustunni sinni og komandi syni heldur en karlinn sem meinar konunni sinni um að gefa barni sínu brjóst. Með öðrum orðum; hafa í huga að meirihluti karla eru góðar manneskjur.

Á sama hátt má hafa í huga að þetta glaðværa og gestrisna fólk á myndunum; flissandi skólastúlkur, fjölskyldur á ferðalagi, konurnar í Isfahan, brosandi mótorhjólatöffararar, öðlingurinn Muhamed bílstjóri og stoltur pabbi á basaarnum, eru meiri og betri fulltrúar múslima en þeir sem skipulögðu, framkvæmdu og fagna grimmdarverkunum í París. Eru bara venjulegt fólk sem þykir vænt um krakkana sína, borðar kökur og fer í ferðalög en finnst best að koma heim eins og okkur hinum. Mér finnst allavega gott að hugsa þetta svona.“

Færslu Sigþrúðar má sjá í heild sinni hér að neðan.

Hryðjuverk og ótti fólks við múslima; ég veit nákvæmlega hvernig þetta er því ég þekki svona ótta. Ég á reyndar ekki í...

Posted by Sigþrúður Guðmundsdóttir on Sunday, 15 November 2015

Tengdar fréttir

Telja sig vita hver höfuðpaurinn er

Franskir embættismenn segja árásirnar á föstudaginn tengjast árásartilraunum í lest fyrr á árinu og á kirkju í Frakklandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×