Erlent

Jindal dregur framboð sitt til baka

Bjarki Ármannsson skrifar
Bobby Jindal.
Bobby Jindal. Vísir/EPA
Bobby Jindal, ríkisstjóri Louisiana, dró í kvöld framboð sitt til embættis forseta Bandaríkjanna til baka. Jindal sóttist eftir tilnefningu Repúblikanaflokksins en sagðist í viðtali við Fox í kvöld hafa áttað sig á því að hans tími væri ekki upp runninn.

Jindal er meðal þeirra ríkisstjóra sem sögðust í gær vilja endurskoða áætlanir um móttöku flóttafólks frá Sýrlandi vegna hryðjuverkaárásanna í París. Sagðist hann á Twitter ætla að reyna að gera allt sem í valdi hans stendur til að koma í veg fyrir að flóttafólk fái að koma til Louisiana.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×