Innlent

Töluvert af eldingum á landinu það sem af er degi

Birgir Olgeirsson skrifar
Töluvert hefur verið af eldingu á Suðausturlandi það sem af er degi miðað við íslenskan mælikvarða.
Töluvert hefur verið af eldingu á Suðausturlandi það sem af er degi miðað við íslenskan mælikvarða. Vísir/Getty
Töluvert hefur verið af eldingum á suðausturhluta landsins um og eftir hádegi í dag og gætu þær gert vart við sig á suðvesturhluta landsins á næstu klukkutímum.

Inni á vef Veðurstofu Íslands er að finna eldingaspá sem sýnir veltimætti (Cape). Veltimætti er mælikvarði á lóðréttan óstöðugleika lofts en eftir því sem loftið er óstöðugra eykst hætta á myndun skúraflóka og við mikinn óstöðugleika er hætta á þrumuveðri.

Óli Þór Árnason, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands, segir spár gefa til kynna að þetta veltimætti verði fremur hátt við suðurströnd landsins seinnipartinn í dag. Síðastliðna nótt og snemma í morgun voru slíkar aðstæður suður af Hornafirði en um hádegisbilið var veltimættið mjög hátt yfir Hornafirði.

Nokkrar eldingar hafa sést innan af Hornafirði, austast í Vatnajökli, og ein við Klaustur. Síðustu þrjú korterin hafa nokkrar sést í kringum Öræfin en annars ekki vestan Mýrdalsjökuls.

„Ég er svolítið spenntur að sjá hvað þetta ætlar að gera hérna seinni partinn við suðurströndina. Það gæti eitthvað gerst hérna á næstu tveimur til fjórum tímum en ég er ekki farinn að sjá neitt sem bendir til þess að þetta gerist,“ segir Óli Þór.

Hann segir aldrei hægt að útiloka að eitthvað tjón geti orðið af eldingum.

„Tjón á heimilistækjum er ekki óalgeng ef það gerir eldingu nálægt. Eða í loftneti eða eitthvað slíkt. Það er alltaf möguleiki. Þó það sé búið að vera einhver tugur eldinga hérna þá þykir þetta mjög ómerkilegt á flesta mælikvarða ef menn eru að miða við útlönd. En það er búið að vera þokkalegt af eldingum á Suðausturlandi miðað við íslenskan mælikvarða.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×