Sport

Bridds er ekki íþrótt

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Bill Gates er hér að spila á spil en ekki taka þátt í íþrótt.
Bill Gates er hér að spila á spil en ekki taka þátt í íþrótt. vísir/getty
Hæstiréttur í Bretlandi hefur úrskurðað að bridds sé ekki íþrótt. Þarf því ekki að rífast lengur um það.

Enska Briddssambandið var ósátt við að Íþróttasamband Englands vildi ekki viðurkenna bridds sem íþrótt og ákvað því að fara með málið fyrir dómstóla.

Íþróttasambandið neitaði að viðurkenna bridds sem íþrótt þar sem það reyndi ekki líkamlega á spilarana.

Briddssambandið er að vonum svekkt með þennan úrskurð og er nú að athuga hvort hægt sé að fara með málið eitthvað lengra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×