Innlent

Sjálfboðaliðar hjálpuðu til á Keflavíkurflugvelli

Heimir Már Pétursson skrifar
Töluverðar tafir urðu á vegabréfaskoðun farþega inn og út af Schengen-svæðinu á Keflavíkurflugvelli í dag vegna verkfalls landamæravarða. Á sama tíma fór fjórmilljónasti farþeginn um flugvöllinn sem er nýtt met. Heimir Már Pétursson er á Keflavíkurflugvelli.

Um 1.100 farþegar komu frá Norður-Ameríku í morgun ýmist á leið til Íslands eða til að fljúga áfram til áfangastaða WOW air og Icelandair í Evrópu. Landamæraverðir í vegabréfaeftirliti, sem eru í SFR, mættu ekki til vinnu vegna verkfallsins en lögregluþjónar á vakt sinntu eftirlitinu.

Því vantaði þrjá starfsmenn á vakt í morgun og síðdegis þegar flugvélarnar frá Evrópu komu til baka og flogið var vestur til Norður-Ameríku.

Flug til Evrópu tafðist um 30 til 60 mínútur í morgun en enginn missti af flugi vegna þessa. Þó gætti dálítils taugatitrings meðal farþega.

Náðuð þið að róa farþega?

„Já, við vorum hérna með starfsfólk þegar að raðirnar voru sem lengstar í morgun. Það voru bæði þjónustuliðarnir okkar og sjálfboðaliðar af skrifstofunni sem að fullvissuðu farþega um að þeir kæmust leiðar sinn,“ segir Guðni Sigurðsson, upplýsingafulltrúi Isavia.

Hann segir suma hafa verið stressaða en þau hafi róast um leið og þau fengu frekari upplýsingar. Þá hafi biðraðir verið minni seinni partinn.

Í dag kom fjórmilljónasti farþeginn um flugvöllinn, sem er nýtt met.

„Það var mikil gleðistund þegar Reynir Pedersen, sem var á leið frá Íslandi til Kaupmannahafnar fékk blómvönd og var leystur út með gjöfum frá Fríhöfninni og Nord veitingastað. Icelandair uppfærði hann upp á comfort.“

Haldist spár Isavia gætu farþegar sem fara um Keflavíkurflugvöll á árinu náð 4,8 milljónum. Á næsta ári gætu þeir verið sex milljónir.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×