Heilsa

5 ástæður þess að konur ættu að lyfta lóðum

Nanna Árnadóttir skrifar
Vísir/Getty
Konur er sífellt að sækja í sig veðrið þegar kemur að lyftingum. Við sjáum ekki lengur bara stóra og stæðilega karlmenn í hnébeygju­rekkanum og bekkpressunni. Nei, kvenþjóðin er sístækkandi hópur í lyftingunum og margar konur farnar að lyfta þungum lóðum, eitthvað sem sást yfirleitt ekki fyrir nokkrum árum. Við eigum heimsmeistara kvenna í bekkpressu! Ég held að ástæða hugarfarsbreytingarinnar sé sú að konur eru farnar að átta sig á því að það þarf ekki pung til þess að lyfta yfir 100 kílóum frá gólfinu og þú munt ekki líta út eins og Hulk og fá skeggrót þó að þú lyftir. Síðan hvenær hefur það líka þurft? Jafnréttið er í lyftingasalnum.

Í tilefni þess að ég er búin að skrifa greinar hjá Vísi í eitt ár og að konur eru geggjaðar ætla ég að birta hér aftur fyrstu greinina sem ég skrifaði í Heilsuvísi, 5 ástæður þess að konur ættu að lyfta lóðum og það ekki seinna en í dag.

1. Konur missa um það bil 5 prósent af vöðvamassa á hverjum 10 árum eftir 35 ára aldurinn ef þær gera ekkert í því. Þegar vöðvamassinn minnkar hægist á grunnbrennslunni sem verður til þess að við fitnum.

2. Við styrktarþjálfun brotna vöðvar niður og byggja sig aftur upp – verða sterkari en áður, 1-2 dögum eftir æfinguna. Til þess þarf líkaminn meiri orku sem verður til þess að brennsla eykst og líkaminn heldur áfram að brenna löngu eftir að æfingunni lýkur. Eftir því sem lóðin þyngjast, því sterkari verða vöðvarnir og því meiri brennsla.

3. Líkaminn verður stinnari og þú færð línur sem þú munt ekki sjá með endalausum þolæfingum. Ekki hafa áhyggjur af því að vöðvarnir verði of stórir og að þú munir líta karlmannlega út. Ástæðan fyrir því að karlmenn fá stóra vöðva er test­ósterónmagn í líkamanum. Konur eru ekki með nægilega mikið af test­ósteróni til þess að byggja upp svo stóra vöðva.

4. Ef við byggjum ekki upp vöðvamassa og viðhöldum honum eftir því sem við eldumst eiga daglegar athafnir eftir að verða erfiðar í framtíðinni. Langar þig ekki að geta komist áreynslulaust fram úr rúminu þegar þú verður sjötug? Leikið við barnabörnin og haft næga orku til þess að ferðast og lifað lífinu? Taktu þá upp lóðin!

5. Síðast en ekki síst, þá er gaman að lyfta lóðum og ná árangri. Byrjaðu hægt og gerðu æfingar þar sem notast er við eigin líkamsþyngd eins og armbeygjur, dýfur á bekk, hnébeygjur og planka.

Náðu grunnhreyfingunum í öllum þessu helstu æfingum og byrjaðu svo hægt og rólega að bæta við þyngdum og hafðu gaman af því að fylgjast með árangr­inum. Hann verður ótrúlegur!


Tengdar fréttir

Skiptir hreyfing barna okkar máli?

Ég hef það á tilfinningunni að eftir það fari áhuginn á hreyfiþroskanum oft að dvína örlítið. Ég get í rauninni ekki sagt til um það hvort þetta eigi við um sjálfa mig þar sem barnið mitt er aðeins rúmlega tveggja ára og enn þá að taka miklum framförum í hreyfiþroska, eins og að hoppa, klifra, hlaupa hraðar og fleira og alltaf finnst mér jafn skemmtilegt og merkilegt að sjá framfarirnar.

Ég hef engan tíma aflögu!

Margir kvarta undan því að hafa ekki tíma til þess að hreyfa sig. Það er bara einfaldlega of mikið að gera. En lestu áfram því hér má mögulega finna svarið við tímaskortinum

Æfirðu of mikið?

Svo virðist sem margir trúi því að því meira sem þeir æfi, því betri árangur náist. Margir sem byrja á stífu æfingaprógrammi falla í þá gryfju að æfa allt of mikið í þeirri von að árangurinn komi fyrr. En hvað er rétt eða rangt í þessum málum.

Heilræði fyrir haustið

Þessi orka finnst mér skemmtileg og eiginlega nauðsynlegur partur af haustinu, þó svo að það væri auðvitað skemmtilegra ef orkan héldist allt árið um kring.








×