Sport

Vonn ökklabrotnaði

Lindsey Vonn.
Lindsey Vonn. vísir/getty
Sigursælasta skíðakona allra tíma, Lindsey Vonn, ökklabrotnaði á æfingu í Nýja-Sjálandi.

Þar er hún að unduirbúa sig fyrir komandi tímabil. Hún datt í brekkunni með þessum afleiðinum.

Hún er nú á heimleið til þess að hitta læknana sína og liggur því ekki fyrir hversu lengi hún verður frá.

Vonn er ekki óvön því að glíma við meiðsli. Hún hefur margoft lent í erfiðum meiðslum en náði samt að snúa til baka á síðasta tímabili og slá metið yfir flesta heimsbikarmótssigra. Svo vann hún HM í bruni í sjöunda sinn líka.

Hún missti þó af ÓL í Sotsjí árið 2014 vegna meiðsla. Hnémeiðsli hafa gert henni lífið leitt og sumar afskrifuðu hana í fyrra en hún gaf öllum slíkum röddum langt nef og stefnir á að gera það aftur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×