Viðskipti erlent

Fjárfestum bannað að selja bréf sín í sex mánuði

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Þriðjungslækkun hefur verið á kínverskum mörkuðum undanfarnar vikur.
Þriðjungslækkun hefur verið á kínverskum mörkuðum undanfarnar vikur. Vísir/AFP
Kínversk stjórnvöld hafa bannað fjárfestum sem eiga meira en 5 prósent í tilteknum félögum að selja bréf sín næstu sex mánuði. Hlutabréfamarkaðir í Kína hafa verið í sem næst frjálsu falli síðustu daga.

Markaðir hafa lækkað um þriðjung síðan um miðjan júní en lækkunin nemur meiru en jafnvirði 450 þúsund milljörðum íslenskra króna. Til 
samanburðar  er það eins og fimmtán  landsframleiðslur  Grikklands á síðasta ári.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×