Sport

Bjóða upp á pítsu með pylsu í endanum

Girnilegt?
Girnilegt? mynd/fresno grizzlies
Þegar fólk fer á völlinn í Ameríku þá skiptir máli hvaða matur er á boðstólnum.

Pítsa og pylsur eru alltaf vinsælar en hafnaboltaliðið Fresno Grizzlies fer nýjar og ótroðnar slóðir í þessum efnum.

Á leik liðsins á fimmtudag verður nefnilega hægt að fá pítsusneið þar sem búið er að troða pylsu í endann. Svokallaða Frankenslice eins og þeir kalla það.

Þetta hefur reyndar verið prófað áður en ekkert félag hefur farið alla leið og boðið upp á þennan rétt á matseðli sínum alla leiktíðina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×