Innlent

Einn og hálfur milljarður í neyðaraðstoð

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Neyðin í Nepal er mikil.
Neyðin í Nepal er mikil. vísir/epa
Alþjóðasamtök SOS Barnaþorpanna hafa kallað eftir einum og hálfum milljarði króna vegna neyðaraðstoðar í Nepal næstu þrjú til fimm árin. SOS Barnaþorpin á Íslandi hafa nú þegar sent þrjár milljónir í aðstoðina sem almenningur á Íslandi hefur gefið í söfnunina.

Í tilkynningu frá samtökunum segir að yfir fimmtíu manns hér á landi hafi óskað eftir að styrkja börn í SOS Barnaþorpum í Nepal. Fyrir jarðskjálftann áttu um 160 Íslendingar styrktarbarn í barnaþorpum þar í landi og áætlað er því að á næstu þremur árum muni samtökin senda rúmar þrjátíu milljónir króna til landsins.

Samtökin taka við börnum sem misst hafa foreldra sína eða orðið viðskila við þá í hamförunum. Börnin dvelja hjá þeim á meðan leitað er að fjölskyldum þeirra. Beri leitin ekki árangur eru fundin önnur úrræði fyrir börnin.

Hægt er að styðja við neyðaraðstoð SOS Barnaþorpanna í Nepal með því að hringja í síma 907 -1001 (1.000 krónur) og í síma 907 - 1002 (2.000 krónur). Einnig er hægt að millifæra framlag á reikning 334-26-52075, kt.500289-2529 með skýringunni: Nepal. Þá er hægt að gerast styrktarforeldri barns eða barnaþorpsvinur en þá er eitt ákveðið SOS Barnaþorp styrkt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×