Innlent

Björguðu sínum dyggasta stuðningsmanni og eru skyndihjálparmenn ársins

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Anna Úrsúla Guðmundsdóttir og félagar geta verið stolt af afreki sínu á liðnu ári.
Anna Úrsúla Guðmundsdóttir og félagar geta verið stolt af afreki sínu á liðnu ári. Vísir/Daníel
Handknattleikskonan Anna Úrsúla Guðmundsdóttir og fyrrum liðsfélagar hennar í Val hafa verið útnefndar skyndihjálparmenn ársins 2014 af Rauða krossinum. Anna Úrsúla og félagar komu einum dyggasta stuðningsmanni Vals til hjálpar á ögurstundu síðastliðið vor.

Æfing var í þann mund að hefjast hjá kvennaliði Vals þegar Anna Úrsúla varð vör við að Guðmundur Helgi Magnússon, 56 ára gamall Valsmaður, virtist missa meðvitund og falla til jarðar. Höfuð hans hafnaði í vegg og blæddi úr því.

Guðmundur Helgi hafði verið að skokka í kringum áhorfendapalla Vodafone-hallarinnar á Hlíðarenda þegar hann fékk hjartaáfall. Brugðust Anna og félagar hárrétt við og er Guðmundur Helgi í dag við góða heilsu.

Rauði krossinn á Íslandi útnefnir árlega skyndihjálparmann ársins í tilefni 1-1-2 dagsins sem er í dag. Markmiðið með deginum er að kynna mikilvægi neyðarnúmersins 112 og hvernig neyðarlínan nýtist almenningi. Rauði krossinn fær þann heiður að útnefna skyndihjálparmann ársins við tilefnið.

Rebekka Rut Skúladóttir
Gasellustökk Önnu

Stefán Arnarsson, þáverandi þjálfari Vals, deildi sinni upplifun á því sem gerðist í bloggfærslu í desember. Hvernig Anna hefði tekið á mikið „gasellustökk“ yfir áhorfendapallana, þegar tekið að athafna sig við Guðmund og kallað á hjálp.

Samhæfingin og liðsheildin var greinilega til staðar því á svipstundu fengu allar konurnar sitt hlutverk. Ein hringdi í neyðarlínuna, ein náði í hjartastuðtæki, ein byrjaði að hnoða og ein skar bolinn utan af Guðmundi svo hefja mætti endurlífgun með hjartastuðtæki.

„Maðurinn sem missti meðvitund var og er mjög virtur innan hópsins og þ.a.l. var björgunin mjög tilfinningamikil og hafði mikil áhrif á hópinn,“ skrifaði Stefán.

„Stelpurnar byrjuðu að hnoða og Rebekka Rut (Skúladóttir) stuðaði einstaklinginn sem leiddi til þess maðurinn komst til meðvitundar um svipað leyti og sjúkrabíllinn mætti á staðinn,“ segir hann.

Stefán hafði á orði við það tilefni að ekki væri til meiri sigur en að bjarga mannslífi.

„Það er hefð sem fylgir áramótum að velja mann eða konu ársins, hjá mér er valið einfalt, Anna Úrsula, Rebekka Rut og þeir leikmenn sem komu að björguninni eru menn ársins að mínu mati,“ segir Stefán. Rauði krossinn var sammála eins og kemur fram í niðurstöðu þeirra í kjöri á skyndihjálparmanni ársins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×