Lífið

Jóhann Jóhannsson í stjörnufans óskarspartý

Adda Soffía Ingvarsdóttir skrifar
Hópurinn, en hvar er Jói?
Hópurinn, en hvar er Jói? Vísir/Getty
Tónlistarmaðurinn Jóhann Jóhannsson mætti í hóf sem haldið var til heiðurs þeirra sem tilnefndir eru til Óskarsverðlaunanna 2015 á Beverly Hilton hótelinu í Los Angeles í gær.

Afhending verðlaunanna sjálfra fer fram sunnudaginn 22. febrúar. Jóhann mun tísta beint frá hátíðinni á íslensku á Twitter aðgangi sínum, sjá hér

Jóhann er tilnefndur fyrir bestu frumsömdu tónlist í kvikmyndinni The Theory of Everything  en hann hlaut Golden Globe verðlaunin í þeim flokki þann 11. janúar síðastliðinn fyrstur Íslendinga.

Hér má sjá mynd af þeim sem tilnefndir eru til Óskarsverðlaunanna, getur þú fundið okkar mann?


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×