Tíska og hönnun

Ekki tolla í tísku – en gerðu það samt

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Hér sést ofurfyrirsætan Cara Delevingne í of stórri hettupeysu. Hún fær tíu í Normcore-kladdann.
Hér sést ofurfyrirsætan Cara Delevingne í of stórri hettupeysu. Hún fær tíu í Normcore-kladdann.
Hugtakið Normcore sameinar orðin „normal“, eða eðlilegt og „hardcore“, eða harður, og var búið til af K-Hole, fyrirtæki sem spáir um hvað koma skal í hinum ýmsu tískustefnum.

Hugmyndin á bak við Normcore er einföld. Þeir sem aðhyllast stefnuna passa sig að skera sig ekki úr fjöldanum með því að klæðast hversdagslegum fötum. Þetta fólk er sem sagt í tísku án þess að vera í tísku.

Þetta þýðir þó ekki að Normcore-arar séu ekki hipp og kúl. Þeir klæðast ekki hverju sem er heldur velja Normcore-fatnaðinn af kostgæfni. Það sem flokkast undir Normcore eru meðal annars bolir, flíspeysur, hettupeysur, kakíbuxur, gallabuxur og póló-bolir. Bindi og blússur tilheyra til dæmis ekki Normcore-tískunni. Þá mega fylgismenn Normcore alls ekki klikka á því að vera í hvítum sokkum við opna sandala á tyllidögum.

Fatnaður sem gæti kallast Normcore er fjöldaframleiddur, oftast nær í Asíulöndum, fyrir stórar verslunarkeðjur, svo sem GAP, Jack & Jones og Abercrombie & Fitch.

Hönnuðurinn Andrea Crews bauð upp á hið geysivinsæla sokka- og sandalakombó á tískuvikunni í París í vikunni.
Á tískuvikunni í París, þar sem vor- og sumartíska næsta árs var kynnt fyrir stuttu, sáu hins vegar glöggir tískuspekúlantar að Normcore-tískan hefur rutt sér til rúms hjá heimsfrægum hönnuðum. Það er því um að gera að draga fram gömlu Fruit of the Loom-bolina og jafnvel Carhart-buxurnar sem fögnuðu mikilli velgengni fyrir aldamótin síðustu og tolla í tísku – án þess þó að gera það.

Ert þú Normcore?

Ef þú svarar meirihluta af eftirfarandi spurningum rétt smellpassar þú í normcore-tískusveifluna:

1. Lítur þú á Barack Obama sem tískutákn?

2. Lítur þú á karakterana í Seinfeld sem tískutákn?

3. Borðar þú franskbrauð oftar en einu sinni í mánuði?

4. Verslar þú í Hagkaup?

5. Gengur þú allajafna með derhúfu?

6. Horfir þú á The Big Bang Theory?

7. Gengur þú í khaki-buxum?

8. Gætirðu hugsað þér að vera í sokkum við opna sandala?

9. Borðar þú unnar kjötvörur eða frosnar, tilbúnar máltíðir?

10. Hlustar þú á U2?






Fleiri fréttir

Sjá meira


×