Lífið

Bankareikningur 50 Cent frystur

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
50 Cent.
50 Cent. vísir/getty
Bankareikningur rapparans 50 Cent hefur verið frystur. Þetta kemur fram á fréttavefnum TMZ.

Ástæða þessara aðgerða er að 50 Cent borgaði ekki rúmlega sautján milljónir dollara sem hann var dæmdur til að greiða fyrirtækinu Sleek Audio. Sleek Audio hélt því fram að 50 Cent hefði stolið hönnun þeirra á heyrnatólum og reynt að markaðssetja þau sjálfur. Dómstólar voru sammála fyrirtækinu. Rapparinn er þó ekki blankur þar sem hann er metinn á 140 milljónir dollara.

Lögfræðingur 50 Cent segir í samtali við TMZ að fólk þurfi ekki að hafa áhyggjur af rapparanum því eignir hans séu verndaðar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×