Innlent

Þrjú til fimm ár að efna loforð um þúsundir leiguíbúða

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Frá undirritun samstarfssáttmálans í Elliðaárdal.
Frá undirritun samstarfssáttmálans í Elliðaárdal. VISIR/VILHLEM
Stærsta kosningaloforð Samfylkingarinnar í aðdraganda borgarstjórnarkosninga var fjölgun leiguíbúða í Reykjavík en flokkurinn lofaði að 2.500 - 3.000 nýjar leiguíbúðir yrðu byggðar á kjörtímabilinu. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og oddviti Samfylkingarinnar var gestur Sigurjóns M. Egilssonar í þættinum Sprengisandi á Bylgjunni í morgun.

„Ég dreg ekkert úr því að það eru mikil fyrirheit en það þarf. Við getum ekki horft á húsnæðismarkaðinn eins og hann er núna án þess að aðhafast eitthvað. En ég vil líka vara við því að þetta tekur tíma. Við höfum sagt að þetta muni taka um þrjú til fimm ár að koma þessu í gang og það er sá tími sem þarf að gefa sér því þetta er vandaverk en mjög brýnt. Þannig að ég verð í þessu af heilum hug frá fyrsta degi,“ sagði Dagur B. Eggertsson.

Fjárhagsstaða Reykjavíkurborgar hefur verið gagnrýnd án þess að fjármálin hafi verið áberandi mál í kosningabaráttunni. Dagur sagði að þau sem standi að meirihlutanum séu alltaf með annað augað á fjármálum borgarinnar. Meðal annars af þessum sökum hafi ekki verið rétt að boða gjaldfrjálsan leikskóla, sem var helsta baráttumál Sóleyjar Tómasdóttur forseta borgarstjórnar. Í samstarfsyfirlýsingu hins nýja fjögurra flokka meirihluta í borginni er vikið að auknu íbúalýðræði.

„Við sjáum hörð viðbrögð við einstaka ákvörðunum í borginni og svo framvegis. Við erum með þessum sáttmála að gefa Pírötum sæti við enda borðsins í nýju stjórnkerfis- og lýðræðisráði og ég horfi bara spenntur til þess hvernig þeir munu halda á því verkefni. Ég held að þeir hafi alla burði til þess, þó nokkuð af nýjum hugmyndum og svo finnum við út úr því saman hvernig þetta verður best gert. Ég held að þetta þurfi að lita allt sem við gerum,“ sagði Dagur B. Eggertsson borgarstjóri í þættinum Sprengisandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×