Erlent

Sjö ungabörn fundust látin á heimili í Utah

Stefán Árni Pálsson skrifar
mynd/fox13now.com
Lögreglan í Bandaríkjunum hefur handtekið 39 ára konu eftir að sjö ungabörn fundust látin á heimili hennar í Plesant Grove í Utah.

Sex af börnunum fundust í aðskildum kössum á heimili konunnar.

Konan heitir Megan Huntsman og var hún handtekinn í morgun að staðartíma.

Grunur leikur á því að konan hafi fætt börnin á tíu ára tímabili og síðan orðið þeim að bana rétt eftir fæðingu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×