Innlent

Dómarinn dæmdi sig vanhæfan

Jakob Bjarnar skrifar
Vilhjálmur Bjarnason segir ástandið sjúkt vegna verðtryggingarinnar, fólk sé að drepa sig vegna lánanna, skilja og rífast fyrir framan börn sín.
Vilhjálmur Bjarnason segir ástandið sjúkt vegna verðtryggingarinnar, fólk sé að drepa sig vegna lánanna, skilja og rífast fyrir framan börn sín. Vísir/Vilhelm
Héraðsdómarinn Ásmundur Helgason felldi úrskurð í máli Hagsmunasamtaka heimilanna á hendur Íbúðalánasjóði varðandi verðtryggð lán sem samtökin telja ólögleg. Ásmundur úrskurðaði sjálfan sig vanhæfan til að dæma í málinu.

Vilhjálmur Bjarnason ekki fjárfestir, formaður Hagsmunasamtaka heimilanna, var boðaður til að hlýða á úrskurð í máli sem hann rekur á hendur Íbúðalánasjóði. Fyrir liggur frávísunarkrafa en úrskurðurinn gekk út á annað. Og kom Vilhjálmi ekki á óvart í þessu máli sem hann kallar það stærsta Íslandssögunnar.

Stærsta mál Íslandssögunnar

„Það varð músin úr þessu eins og öllu öðru. Hann segir sig frá málinu dómarinn. Úrskurðurinn er á þá leið að þetta geti haft almenna þýðingu fyrir lántaka hjá stefndu, Íbúðalánasjóði. Dómarinn tók 18 milljóna króna lán hjá Íbúðalánasjóði árið 2007 og eru eftirstöðvar þess uppreiknaðar miðað við vísitölu neysluverðs rúmlega 26 milljónir í dag. Í ljósi þess telur dómari að fyrir hendi séu aðstæður sem séu fallnar til þess að draga óhlutdrægni hans í efa með réttu samkvæmt lögum og því víkur hann sæti í málinu,“ segir Vilhjálmur. Honum er gramt í geði, segir marga vilja sem minnst af málinu vita. Enda sé það svo flókið og stórt í sniðum og hann er ekki bjartsýnn á að það fái eðlilegan framgang. Kerfið muni leggjast gegn því enda muni blasa við annað hrun ef það fer eins og Vilhjálmur telur eðlilegast. „Við byrjuðum með þessi málaferli fyrir ári síðan, eitt stærsta mál Íslandssögunnar og ég er viss um að við höfum rétt fyrir okkur; útfærsla verðtryggingar á neytendalán er ólögleg allt frá 11. janúar 2001, þegar húsnæðislán voru sett undir neytendalán.“

Átti að segja sig frá málinu strax

Úrskurður dómarans núna kemur Vilhjálmi ekki á óvart og nú fer málið aftur til dómsstjóra. „Dómarinn er búinn að vera í tvo mánuði að átta sig á því að hann væri með verðtryggt lán. Auðvitað átti hann aldrei að taka við málinu. Hann er sem sagt búinn að tefja málið um tvo mánuði. Að mínu viti eru allir Íslendingar tengdir einhverjum sem er með verðtryggt lán og að sama skapi hljóta þá allir dómarar að falla undir það og er þá verið að tala um að það sé enginn dómari hæfur til að dæma í þessu máli?“ spyr Vilhjálmur. Hann útskýrir að dómarinn hafi bara átt að fjalla um frávísunarkröfu Íbúðalánasjóðs. „Íbúðalánasjóður fer fram á frávísun – þeir vilja náttúrlega geta haldið áfram að rukka ólöglegar verðbætur á lánin.“

Sjúkt ástand

Vilhjálmur segir ástandið sjúkt. „Við ætlum að skora á húsnæðismálaráðherra, Eygló Harðardóttur, að hlutast til um þetta mál og skipa Íbúðalánasjóði að draga til baka frávísunarkröfuna og fá fram efnislega niðurstöðu í málinu sem hlýtur að vera til hagsbóta fyrir alla þjóðina. Þessi óvissa getur ekki hangið lengur yfir heimilunum.“

Vilhjálmur segir allt kerfið hanga á lyginni einni saman og senda eigi börnum þessa lands reikninginn. „Ég á sex börn og ég ætla ekki að bjóða þeim uppá þetta. Fólk er að drepa sig út um allt vegna þessa, skilja og rífast fyrir framan börnin sín,“ segir Vilhjálmur og rekur dæmi um lán sem hafa hækkað uppúr öllu valdi vegna verðtryggingarinnar.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×