Erlent

NASA blandar sér í leitina að týndu flugvélinni

Jóhannes Stefánsson skrifar
Það þykir með ólíkindum að vélin hafi horfið með þeim hætti sem hún gerði.
Það þykir með ólíkindum að vélin hafi horfið með þeim hætti sem hún gerði. Vísir/AFP
Geimferðastofnun Bandaríkjanna (NASA) hefur nú blandað sér í leitina að flugvélinni sem týndist á leið sinni frá Kuala Lumpur til Peking þann 8. mars síðastliðinn.

NASA mun greina gervihnattamyndir til að reyna að komast að raun um hvað varð af flugvélinni. Í gögnum NASA er hægt að sjá hluti sem eru rúmlega 10 metrar á stærð og því er ekki útilokað að flugvélin finnist á gervinhattamyndum stofnunarinnar.

Ýmsar kenningar hafa verið á lofti um afdrif vélarinnar. Nýjustu kenningarnar herma að vélin hafi haldið áfram að senda gögn til gervihnatta í um fimm klukkustundir eftir að hún hvarf af ratsjá. Það þykir benda til þess að hún hafi verið á lofti mun lengur en upphaflega var gert ráð fyrir. Yfirvöld í Malasíu hafa þó sagt að þetta eigi ekki við rök að styðjast.

Hingað til hefur hvorki tangur né tetur fundist af flugvélinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×