Innlent

Bæturnar hefðu mátt vera hærri

Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar
Húsið á Stokkseyri þar sem hin hrottafullaárás fór fram.
Húsið á Stokkseyri þar sem hin hrottafullaárás fór fram.
Bæturnar fyrir eitt fórnarlambanna í Stokkseyrarmálinu hefðu mátt vera hærri, að mati réttargæslumanns hans, Björns Jóhannessonar hæstaréttarlögmanns.

„Þetta var svo hrottafengin árás á umbjóðanda minn,“ segir hann. Umbjóðandi Björns er sá sem var haldið í tæpan sólarhring og meðal annars fluttur í hús á Stokkseyri. Þar var ráðist á manninn og hann meðal annars sleginn með belti og einhvers konar snúru í líkamann áður en hann var afklæddur og skilinn eftir nakinn með svartan plastpoka um sig í kjallara hússins. Hann var bundinn við burðarstoð með beisli um höfuðið þannig að mélin voru í munni hans.

Maðurinn krafðist rúmlega sex milljóna króna í bætur vegna árásarinnar.  Hann fékk tvær og hálfa milljón í miskabætur og bætur fyrir vinnutap og tannlæknakostnað en ein tönn brotnaði í árásinni. Samtals nam bótafjárhæðin  tæpum þremur milljónum króna.

Maðurinn getur ekki áfrýjað þeim þætti málsins sem snýr að bótunum til Hæstaréttar og aðeins verður fjallað um þann þátt málsins fyrir Hæstarétti ef ákæruvaldið eða hinir dæmdu áfrýja dómnum.

„Þeir eru allir samábyrgir fyrir allri fjárhæðinni,“ segir Björn.

Ríkissjóður ábyrgist greiðslu bótanna. En samkvæmt lögum um greiðslu ríkissjóðs á bótum til þolenda afbrota kemur fram að ríkissjóður greiðir bætur fyrir miska upp að þremur milljónum króna.


Tengdar fréttir

Ákærðu fá ekki að vera viðstaddir vitnaleiðslur

Fyrirtaka í Stokkseyramálinu svokallaða fór fram í Héraðsdómi Reykjavíkur rétt fyrir hádegi í dag. Þar var tekist á um hvort sakborningum í málinu verði gert að víkja úr dómsal meðan á vitnaleiðslum stendur. Aðalmeðferð í málinu hefst á mánudag og standa yfir í þrjá daga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×