Handbolti

Arnór: Staðan á mér er ekki nógu góð

Henry Birgir Gunnarsson í Álaborg skrifar
Arnór í þjóðsöngnum fyrir leik.
Arnór í þjóðsöngnum fyrir leik. vísir/daníel
Það var skarð fyrir skildi hjá íslenska liðinu í kvöld að Arnór Atlason gat ekki spilað með vegna meiðsla. Hann komst ekki í gegnum upphitun og varð því að hvíla á bekknum.

"Staðan á mér er ekki nógu góð, annars hefði ég spilað. Ég hélt að ég væri tilbúinn en það var ekki möguleiki og lítið við því að gera," sagði Arnór.

Hann fer í frekari rannsóknir á morgun og þá kemur betur í ljós hver staðan sé á honum. Er hann hræddur um að hann sé búinn að spila sinn síðasta leik á mótinu?

"Auðvitað er maður hræddur en ég held ekki. Ég þarf bara að taka einn dag í einu og vona það besta."


Tengdar fréttir

Guðjón: Erum að spila frábærlega

Landsliðsfyrirliðinn Guðjón Valur Sigurðsson var nokkuð jákvæður eftir tapið gegn Spánverjum enda lék íslenska liðið nokkuð vel og átti í fullu tré við heimsmeistarana nær allan leikinn.

Björgvin Páll: Þeir kunna að vinna svona leiki

Íslenska landsliðið tapaði með fimm marka mun á móti heimsmeisturum Spánverja í lokaleik sínum í B-riðli á EM í handbolta í Danmörku. Björgvin Páll Gústavsson átti mjög góðan leik í íslenska markinu en það dugði ekki til.

Aron: Klúðruðum fimm hundrað prósent færum í seinni hálfleik

Íslenska landsliðið tapaði með fimm marka mun á móti heimsmeisturum Spánverja í lokaleik sínum í B-riðli á EM í handbolta í Danmörku. Landsliðsþjálfarinn Aron Kristjánsson talaði eftir leikinn um dauðafærin sem fóru forgörðum í seinni hálfleiknum.

Rúnar: Ég veit að ég get betur

"Við erum að ná að komast fram úr þeim og missum það jafn óðan niður. Ég veit ekki hvað er málið. Hvort það tók svona mikla orku að komast yfir eða hvað," sagði skyttan unga Rúnar Kárason eftir tapið gegn Spáni.

Snorri: Ég mun verja frá Mikkel Hansen

"Eins og við var að búast var þetta erfitt. Við erum inn honum lengi og þetta var hörkuleikur. Við komumst í góða stöðu en áttum þá slæman kafla. Svo er hrikalega dýrt að vera manni færri. Þeir kunna að nýta sér það í botn," sagði Snorri Steinn Guðjónsson eftir tapið gegn Spáni.

Þórir: Bjartsýnn á að geta spilað áfram

Þórir Ólafsson er að glíma við erfið meiðsli aftan í læri en náði sér nógu góðum til þess að spila í tapleiknum gegn Spánverjum í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×