Körfubolti

Páll Axel jafnar met Guðjóns með næsta þristi

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Páll Axel Vilbergsson hefur skorað þessar þriggja stiga körfur fyrir Grindavík og Skallagrím.
Páll Axel Vilbergsson hefur skorað þessar þriggja stiga körfur fyrir Grindavík og Skallagrím. Mynd/Stefán
Páll Axel Vilbergsson skoraði sjö þriggja stiga körfur í sigri Skallagríms á Snæfelli í Stykkishólmi í Dominos-deild karla í körfubolta í kvöld.

Páll Axel hefur þar með skorað 964 þriggja stiga körfur í úrvalsdeild og vantar nú aðeins eina þriggja stiga körfu í viðbót til að jafna met Guðjóns Skúlasonar.

Páll Axel hefur raðað niður þriggja stiga körfur í vetur og hefur alls skorað 32 slíkar í þeim tíu leikjum sem hann hefur spilað en það þýðir yfir þrjá þrista að meðaltali í leik.

Það má því búast við að metið falli í Fjósinu í Borgarnesi í næstu viku þegar Skallagrímur tekur á móti Stjörnunni í Dominos-deildinni.

Flestar þriggja stiga körfur í úrvalsdeild karla:

Guðjón Skúlason - 965

Páll Axel Vilbergsson - 964

Teitur Örlygsson - 742

Magnús Þór Gunnarsson - 709

Kristinn Friðriksson - 673




Fleiri fréttir

Sjá meira


×