Lífið samstarf

1,517 kíló kvödd með stæl

Sigurveig Björgólfsdóttir var valinn mesti gleðigjafinn.
Sigurveig Björgólfsdóttir var valinn mesti gleðigjafinn.
Líkamsrækt JSB efndi til aðventuhátíðar á dögunum þar sem kastljósinu var beint að þeim glæsilega árangri sem JSB konurnar vinna.

Dregnir voru út vinningshafar á hátíðinni en verðlaun voru veitt fyrir ýmis afrek og árangur og meðal annars valinn mesti naglinn og gleðigjafinn. Þess má geta að á síðustu TT-námskeiðum fóru 1.517 kg og voru þau kvödd með stæl.

Þátttakan var frábær og mættu JSB konur á öllum aldri til að gleðjast og hrósa hver annarri en þess má geta að sú elsta í hópnum er um nírætt.

Hér má sjá myndir af hátíðinni.

Soffía Stefánsdóttir, stórglæsilegur aldursforseti JSB kvenna sem hefur stundað ræktina í rúm 40 ár.
Hver fær vinninginn? Linda Sigurjónsdóttir dregur nafn vinningshafa meðan Þórdís Schram og Anna Þorsteinsdóttir, allar kennarar hjá JSB, fylgjast spenntar með.
Lóa Bjarnadóttir er hæðst ánægð með vinninginn en nafn hennar var dregið úr lukkupottinum. Hér er hún ásamt Þórdísi Schram.
Bára og Kristrún Oddsdóttir sem fékk verðlaun fyrir frábæran árangur á TT námskeiðunum.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×